Vöxtur er stór þáttur í lífi kettlingsins og hvernig til tekst með vöxt og þroska á þessum tíma skiptir miklu máli upp á framhaldið. Kettlingar eru í eðli sínu forvitnir og eru duglegir við að fara þangað sem þeir mega ekki með þeim hættum sem þar leynast. Fóðrið inniheldur ríkulegt magn andoxunarefna og önnur efni eins og C-vítamín, E-vítamín, tárín og lútein sem styrkja ónæmiskerfið og vernda kettlinginn á leið hans við að skoða heiminn og uppgvöta nýja hluti.
Samverkandi andoxunarefni aðstoða við að hlutleysa sindurefni og minnka þar með skaðsemi þeirra.
Inniheldur auðmeltanleg prótein (LIP) sem léttir á viðkvæmu meltingarkerfi. Inniheldur einnig fructo-oligosaccharides (FOS) og manno-oligosaccharides (MOS) sem styrkja meltingarveginn og stuðla að jafnvægi í þarmaflórunni.
Mætir orku, vítamína- og steinefnaþörfum kettlinga sem eru að stækka, með réttu magni próteina, kalks og fosfórs. Innihald fitu er aðlagað og þannig er tekið tillit til minni orkuþörf eftir ófrjósemisaðgerð (geldingu).
Prótein: 34% - Trefjar: 9.8% - Fita: 12%.