Giant Junior

Giant Junior fóður fyrir hvolpa af risahundakyni

Langt vaxtartímabil

Í risahundum er vaxtartímabilið langt og töluvert lengra en hjá flestum öðrum hundastærðum eða frá 8 mánaða aldri til 18/24 mánaða aldurs. Giant Junior fóðrið er sérstaklega ætlað risahundategundum á þessum aldri. (Frá 2-8 mánaða mælum við með Maxi Puppy).

Með stórt hjarta og stóran líkama

Royal Canin Giant Junior fóðrið er sérstaklega gert fyrir hina vinalegu risa þegar þeir eru á síðara hvolpaskeiði. Hvolpar af slíkri stærð eru, vegnar stærðar sinnar, með stöðugt álag á liði og getur melting þeirra sömuleiðis verið viðkvæm enda er hlutfallsfallsleg stærð meltingarvegar minni en hjá minni hundategundum.

Jafn vöxtur

Ef ójafnvægi er í orkuinnihaldi fóðurs geta hvolpar af risahundakyni vaxið of hratt og sett gríðarlegt álag á bein og liði. Fóðrun með Giant Junior tryggir jafna orku á þessu viðkvæma tímabili og stuðlar að því að beinþétting og samvöxtur liða sé í réttu hlutfalli við ákjósanlegan vöxt þessara stóru hunda.

Stuðningur við liði

Fóðrið er sérstaklega gert með það í huga að styðja við liðina með glúkósamíni, kondóitríni og EPA/DHA fitusýrum.

Andoxunarefni

Það er ríkt af andoxunarefnum til að stuðla að því að hlutleysa sindurefni og koma í veg fyrir skaða í frumum líkamans og styrkir þar með náttúrulega varnir líkamans.

Heilbrigð melting

Til þess að styðja við viðkvæma meltingu er fóðrið ríkt af hágæða auðmeltanlegum próteinum, blöndu af vatnleysanlegum og óvatnsleysanlegum trefjum og góðgerlafæði (MOS og FOS).

Stærð hunda

Fyrir hvolpa af risahundakyni sem eru á síðara hvolpatímabili (8-18/24; 24 mánuðir fyrir allra stærstu hundana) og vega fullorðnir 45 kg eða meira.

Næringargildi

Prótein: 31% - Fita: 16% - Trefjar: 1,3% 

Customer Reviews

Based on 2 reviews
100%
(2)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
S
Sandra Björk - Darktimes Ræktun
Mafía ( Bullmastiff )

Mafia elskar mat og sértaklega Giant junior þvi hun nær að njóta 10x betur og tyggur vel.
Þroskinn er mun stabílli sem hentar sérlega vel í svona stóra kroppa sem vaxa mikið og hratt,
Miða við fyrri hunda þa er Mafía minn stirð og hölt a vaxtakipps tímabilum sem segir mer að þetta styðji vel við vöxt og liði.
Við erum alsæl með Giant línuna og millibilið fra puppy og upp í adult nauðsynlegt með junior♥️

D
Davíð Örn
BIGGIE SMALLS .. Bullmastiff

Frábært fóður og geggjað að fá svona stórar kúlur, mikill munur hvernig Biggie borðar hægar núna en áður.
Og þroskast hrikalega vel a Junior