Nýtt netnámskeið! Ofnæmi í hundum og köttum

maí 15, 2026 1 mínútur að lesa

Dýrheimar leggja mikla áherslu á vellíðan allra hunda og katta. Við höfum því hannað nýtt netnámskeið: Ofnæmi í hundum og köttum.


Markmið netnámskeiðsins er að fræða eigendur um helstu birtingarmyndir ofnæmis í hundum og köttum, útskýra hvernig húðofnæmi er greint og meðhöndlað, fara yfir hvað eigendur geta gert til að draga úr líkum á bakslagi og auka skilning á því hvers vegna húðvandamál geta verið flókin og tímafrek í greiningu og meðferð.


Netnámskeiðið samanstendur af 8 köflum sem fara yfir helstu gerðir ofnæmis hjá hundum og köttum, hvernig á að þekkja algeng einkenni og hvernig á að bregðast við ef húðvandamál koma upp.

Bókaðu netnámskeiðið, Ofnæmi hunda og katta, hér að neðan

Netnámskeið dýrheima

Heilsutékk Dýrheima leggur áherslu á að gera hunda- og kattaeigendur sérfræðinga í eigin dýrum. Hér að neðan finnur þú fleiri áhugaverð námskeið.