Vet Symposium 2026

maí 01, 2026 2 mínútur að lesa

Andrea Björk Hannesdóttir, dýralæknir og Kristín Sara Georgsdóttir, dýrahjúkrunarfræðingur, sóttu dýralæknaráðstefnu (Vet Symposium 2026) í Montpellier í Frakklandi. Ráðstefnan fór fram dagana 28. - 29. apríl sl. og komu þar saman sérfræðingar víðs vegar að úr heiminum til að miðla sinni þekkingu og reynslu.


Þátttaka þeirra gaf þeim dýrmætt tækifæri til að kynna sér nýjustu stefnur í dýralækningum, með sérstakri áherslu á næringu og heilsueflingu hunda og katta, auk áhrifa gervigreindar á dýralæknaþjónustu. 

Kristín dýrahjúkrunarfræðingur og Andrea dýralæknir á ráðstefnu
Kristín og Andrea mættar á ráðstefnuna!

700 manns frá 80 löndum

Ráðstefnan var afar vel sótt, en um 700 þátttakendur frá 80 löndum komu saman í Montpellier til að fræðast um næringu og heilsu hunda og katta með vísindi að leiðarljósi. Dagskráin var fjölbreytt og byggði á nýjustu þekkingu í heilsueflingu hunda og katta.


Áhersla ráðstefnunnar var fyrst og fremst á fyrirbyggjandi umönnun, þar sem markmiðið er að stuðla ekki bara að lengra lífi, heldur heilbrigðara lífi dýra. Sérfræðingar lögðu áherslu á mikilvægi þess að grípa inn í snemma með réttri næringu og markvissri eftirfylgni, í stað þess að bregðast einungis við þegar vandamál hafa þegar komið upp.


Slík nálgun getur haft veruleg áhrif á lífsgæði hunda og katta, þar sem hún stuðlar að betri heilsu til lengri tíma litið og getur dregið úr líkum á alvarlegum heilsufarsvandamálum síðar meir.

Ráðstefnusalur

Andrea og Kristín öðluðust mikla og gagnlega þekkingu á ráðstefnunni sem þær munu nýta í starfi sínu til að bæta þjónustu og stuðla að aukinni heilsu og vellíðan dýra.

Heilsutékk Dýrheima

Heilsutékk Dýrheima býður upp á fjölbreytta þjónustu er varðar umönnun hunda og katta. Markmið Heilsutékks er að gera hunda- og kattaeigendur að sérfræðingum í sínum dýrum. Forvörn er besta lækningin og miðar þjónustan að því að styðja við fyrirbyggjandi umönnun, greiningu og meðhöndlun eftir þörfum.