apríl 28, 2026 2 mínútur að lesa
Þann 25. apríl sl. hélt Dýrheimar ræktendafræðslu á vegum Royal Canin, þar sem hunda- og kattaræktendur komu saman á fræðandi viðburð. Kvöldið var sérstaklega ætlað þeim sem vilja dýpka þekkingu sína á faglegri og ábyrgri ræktun.
Angela Hughes hélt fyrirlestur um erfðafræði ræktunardýra til þess að stuðla að heilbrigðri og ábyrgri ræktun. Angela er dýralæknir og sérfræðingur í erfðafræði sem og sjálf ræktandi Welsh Springer Spaniel. Hún hefur þróað nýstárlega aðferð til að bera saman möguleg ræktunardýr með áherslu á erfðafræðilega fjölbreytni. Angela býr yfir bæði fræðilegum og klínískum bakgrunni og hefur starfað náið með ræktendum og dýralæknum að því að tengja erfðafræðilega þekkingu við raunhæfar og upplýstar ræktunarákvarðanir.
Á staðnum var einnig aðgangur að listasýningunni Chromo Sapiens, sem setti skemmtilegan svip á viðburðinn enda áhugaverð og vel gerð sýning sem gaman var að sjá.


Fræðsla og samvera var markmið viðburðarins og vonum við að ræktendur hafi notið kvöldsins í skemmtilegu og fallegu umhverfi. Stemningin var góð og gátu ræktendur spjallað, tengst og deilt reynslu sinni með öðrum ræktendum.
Við viljum þakka ræktendum kærlega fyrir komuna sem og þolinmæðina þegar tæknin var að stríða okkur. Við munum senda þátttakendum link fljótlega inn á fræðsluerindið og vonum að fræðslan nýtist vel.
Vilt þú læra meira um ræktun hunda og katta? Dýrheimar bjóða upp á netnámskeiðið Gotfræðsla þar sem farið er yfir allt frá pörun að afhendingu hvolpa og kettlinga. Markmið námskeiðsins er að veita ræktendum faglega fræðslu um ræktunardýr, efla hæfni og öryggi til að fyrirbyggja, greina mögulegar hættur og stuðla að sem bestum árangri gegnum fóðrun og umönnun ræktunardýra og afkvæma.