Leiksvæði Dýrheima hefur opnað!

apríl 24, 2026 1 mínútur að lesa

Nú hefur leiksvæði Dýrheima opnað og er án efa kærkomin viðbót fyrir hunda og eigendur þeirra! Um er að ræða 320 fermetra hundagerði með skemmtilegum leiktækjum fyrir hunda. Gerðið er tilvalið fyrir leik, þjálfun eða jafnvel skipulagða hittinga með hundavinum.


Með nýja leiksvæðinu styrkja Dýrheimar enn frekar þá sýn að skapa samfélag fyrir hunda- og kattaeigendur þar sem þeir geta sótt þær vörur og þjónustu sem þeir þurfa til að annast dýrin sín með öruggum hætti, tryggt velferð þeirra og heilsu, bæði andlega og líkamlega. Hægt er að bóka leiksvæðið á opnunartíma Dýrheima, frá kl. 9-16, alla virka daga.


Þann 16. maí nk. verður laugardagsopnun á Kaffihúsi Dýrheima og þá verður hægt að koma og prófa leiksvæðið ásamt fleiri skemmtilegum dagskráliðum sem verða auglýstir síðar.

Leiksvæði Dýrheima
Leiksvæði Dýrheima

Bóka leiksvæðið

Boðið er upp á bæði opna leiktíma þar sem hægt er að leigja aðgang að svæðinu, sem og einkaleigu fyrir einstaklinga eða hópa sem vilja hafa gerðið út af fyrir sig. Einkaleiga hentar séstaklega vel fyrir hunda sem þurfa rólegra umhverfi, eru í þjálfun eða fyrir stærri hópa sem vilja hittast með marga hunda í einu. 

Ljómi á leiksvæði Dýrheima

Ljómi á leiksvæði Dýrheima
Ljómi á leiksvæði Dýrheima
Ljómi á leiksvæði Dýrheima

Ljómi fékk heiðurinn af því að vera fyrstur til að prófa nýja svæðið ásamt Ingibjörgu. Þau nutu sín til fulls meðal fjölbreyttra leiktækja sem svæðið hefur upp á að bjóða og náðu um leið góðri og uppbyggilegri þjálfun.