Skyndihjálp: Lærðu að bjarga dýrinu þínu

apríl 17, 2026 3 mínútur að lesa

Dýralæknir að skoða hund
Andrea, dýralæknir Dýrheima, að skoða Ljóma.

Skyndihjálp fyrir dýr: Mikilvægi sem oft gleymist

Flestir eru meðvitaðir um mikilvægi þess að kunna skyndihjálp þegar það kemur að fólki, en oft gleymist að dýr geta einnig lent í óvæntum og lífshættulegum aðstæðum. Dýrheimar leggja mikla áherslu á að dýraeigendur séu vel undirbúnir fyrir alls konar aðstæður og hafi góða þekkingu á eigin dýrum.

Skyndihjálp er hluti af ábyrgri dýraeign

Skyndihjálp fyrir dýr snýst um að bregðast hratt og rétt við áður en farið er til dýralæknis. Dýrheimar hafa því þróað nýtt netnámskeið þar sem farið er yfir helstu atriði sem mikilvægt er að hafa í huga við skyndihjálp dýra. Á námskeiðinu er meðal annars farið í gegnum raunveruleg dæmi sem geta hjálpað eigendum að meta aðstæður betur. Markmið námskeiðsins er að veita eigendum öryggi, þekkingu og sjálfstraust, ásamt hagnýtum ráðum sem skipta máli og geta í sumum tilvikum bjargað lífi dýrsins. 


Á námskeiðinu er meðal annars farið yfir:

  • Fyrstu hjálpar kassi: Hvað er nauðsynlegt að hafa.
  • Hvernig meta á ástand dýrsins? Lísmörk, öndun, púls og slímhúðir.
  • Hjartastopp: Viðbrögð og framkvæmd hjartahnoðs.
  • Köfnun og öndunarerfiðleikar: Viðbrögð þegar sekúndur skipta máli.
  • Eitranir og inntaka skaðlegra efna: Fyrstu skref áður en dýrið kemst til dýralæknis.
  • Krampar: Fyrstu viðbrögð og hvenær á að hafa samband við dýralækni.
  • Viðbrögð við slysum: Sár, blæðingar, árásir og beinbrot.

Forvarnir og fræðsla skipta sköpum

Með reglulegu eftirliti, góðri fræðslu og einstaklingsmiðaðri næringaráðgjöf má koma í veg fyrir ýmis heilsufarsvandamál. Því leggja sérfræðingar Dýrheima mikla áherslu á forvarnir og fræðslu í fræðslusetri okkar. 


Í Heilsutékki Dýrheima er hægt að nálgast fjölbreytta fræðslu og netnámskeið, auk þjónustu dýralæknis og dýrahjúkrunarfræðings.



hundur á vikt
Hundur í skoðun í Heilsutékki Dýrheima.

Heilsutékk Dýrheima

Hefur vaxið hratt á þessu ári og fleiri sérfræðingar hafa bæst við teymið til að styðja eigendur hunda og katta með faglegri ráðgjöf og þjónustu. Markmið Heilsutékk Dýrheima er að veita öllum eigendum þau verkfæri sem þarf til að taka upplýstar og öruggar ákvarðanir varðandi dýrin sín. Þegar eigendur eru sérfræðingar í eigin dýrum, þekkja einkenni sjúkdóma, vita hvernig á að bregðast við og hvenær á að hafa samband við dýralækni, aukast lífsgæði bæði dýranna og fjölskyldunnar allrar. 

Andrea Björk Hannesdóttir

Andrea er dýralæknir að mennt en hún stundaði nám við Háskólann í Kaupmannahöfn (Københavns Universitet) og hefur aukið við sig nám í bráðalækningum hjá ESAVS. Áhugasvið Andreu eru húðsjúkdómar, atferlisfræði og næringarfræði hunda og katta. 


Andrea sér um heilsufar, næringu, ofnæmi, meltingu, þyngd og fleira hjá Dýrheimum. Hún vinnur með eigendum og veitir leiðsögn fyrir hunda og ketti sem glíma við langvinn heilsufarsvandamál.

Kristín Sara Georgsdóttir

Kristín er dýrahjúkrunarfræðingur að mennt en hún stundaði nám við Hansenberg, Kolding í Danmörku. Áhugasvið Kristínar er að hjálpa eigendum að þekkja dýrin sín betur og fyrirbyggja vandamál og sjúkdóma gegnum ummönnun. 


Kristín sinnir almennri heilbrigðisskoðun hjá Dýrheimum, þar á meðal stöðumat, klóaklipping, eyrnahreinsun og klóaklipping fyrir bæði hvolpa, kettlinga og eldri dýr. Þjónustan er alltaf á hraða dýrsins og með áherslu á jákvæða upplifun og vellíðan

Theodóra Róbertsdóttir

Theodóra er dýrahjúkrunarfræðingur að mennt og er með Award of merit í næringu smádýra frá BSAVA. Ásamt því er áhugasviðið að fyrirbyggja vandamál og sjúkdóma gegnum umönnun. 


Theodóra er Fræðslustjóri Dýrheima og sér til þess að bæði fagaðilar og dýraeigendur hafi aðgang að fræðslu sem er byggð á vísindum, en ekki trendum, varðandi næringu, umönunn og heilsu hunda og katta.