Stigahæstu hundar spanieldeildar 2024 heiðraðir

febrúar 26, 2025 1 mínútur að lesa

Spanieldeild HRFÍ heiðraði stigahæstu hunda ársins innan deildarinnar þriðjudaginn 25. febrúar.


Við erum stolt að segja frá því að stigahæsti hundur, stigahæsti ungliði og stigahæsti öldungur deildarinnar eru öll fóðruð á Royal Canin en þau eru sömuleiðis öll í eigu Leirdals ræktunar, Þórdísar Maríu Hafsteinsdóttur.


Stigahæstu hundar hverrar tegundar fengu gjöf frá Royal Canin.


Heiðrunin var haldin á kaffihúsinu okkar og mætingin var góð hjá meðlimum spanieldeildar.

Stigahæsti Spaniel hundur ársins 2024

Stigahæsti spaniel hundur ársins 2024 var enski cocker spaniel hundurinn "Amigo - Haradwater I Don't Care"

Spanieldeild HRFÍ heldur utan um ræktunarstarf í enskum cocker spaniel, enskum springer spaniel og amerískum cocker spaniel. Nánar um starf deildarinnar hér.

 

Við óskum eigendum og ræktendum stigahæstu hundanna innilega til hamingju með frábæran árangur. Að baki árangursins liggur mikil vinna sem snýr að þjálfun, fóðrun og umhirðu á þessum fallegu hundum!

 

Royal Canin Cocker Adult fóðrið

  • Sérsniðið að þörfum Cocker Spaniel 
  • Styður við hjartaheilsu
  • Stuðlar að heilbrigðri húð og feldi
  • Stuðlar að góðri liðheilsu
  • Inniheldur kalkbindandi efni gegn tannsteinsmyndun.