Stórhundadagar í Garðheimum

febrúar 09, 2026 1 mínútur að lesa

Um helgina fóru fram Stórhundadagar í Garðheimum! Óli sölustjóri var á staðnum og tók á móti fjölda hundaeigenda og ferfættu vinum þeirra. Hann átti mörg skemmtileg samtöl og var til aðstoðar við að velja rétt fóður frá Royal Canin, til þess að tryggja að hundarnir þeirra fái réttu næringuna. 


Við viljum þakka öllum sem mættu kærlega fyrir frábæra helgi! Það er alltaf jafn gaman að hitta ykkur og fallegu hundana ykkar. 

Óli sölustjóri í Royal Canin bás

Hérna eru nokkrir hundar sem tóku á móti gestunum

íslenskur fjárhundur
hundur í gerði
stór hundur að standa við hliðina á mann
svartur labrador
tveir dalmatíuhundar
einn beauceron hundur