Ræktendafræðsla í Dýrheimum

febrúar 06, 2026 2 mínútur að lesa

Þann 4. febrúar héldum við Royal Canin hádegisfræðslu á kaffihúsi Dýrheima fyrir ræktendur. Farið var yfir allt sem þarf að hafa í huga þegar kemur að því að hugsa um hunda og ketti á meðgöngu og í fæðingu, ásamt umönnun hvolpa og kettlinga. Kaffihúsið var fullt af áhugasömum ræktendum en einnig héldum við fyrirlesturinn á netinu í fyrsta sinn, þar sem ræktendur sem gátu ekki komið á staðinn horfðu á fræðsluna. Viðburðurinn var vel heppnaður og það er alltaf jafn gaman að hitta og ræða við flotta ræktendur. Við þökkum öllum sem komu eða hlustuðu á netinu kærlega fyrir þátttökuna og við hlökkum til að hitta ykkur aftur í næstu ræktendafræðslu!

Collage of pictures from the event, with Royal Canin products and pictures of the presentation

Fræðsla með Theodóru

Margt þarf að hafa í huga þegar kemur að ræktun. Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur, fór með frábæra kynningu sem nýtist vonandi vel hjá ræktendum sem sóttu fræðsluna. Farið var yfir þá þætti sem geta haft áhrif á æxlun hunda og katta. Í framhaldinu var svo fjallað um allt ferlið frá pörun og að því þegar ungviðin fara að heiman. Næring er lykilatriði í þessu ferli til þess að halda ungviðum heilbrigðum. Theodóra fór vel í gegnum hvað þarf að hafa í huga í val á fóður ásamt því að fara yfir aðra áhrifaþætti. 


Start of Life línan frá Royal Canin er sérsniðin að þörfum móðurinnar og einnig upp allt uppvaxtaskeið ungviðanna. 

Three women standing and Royal Canin banner

Theodóra dýrahjúkrunarfræðingur með okkar nýju starfsmönnum Kristínu dýrahjúkrunarfræðing og Andreu dýralækni. Þær voru einnig á staðnum til þess að svara spurningum.

Sérsniðið fóður fyrir meðgöngu frá royal canin

Start of life hundalína - fyrir besta upphaf lífsins

Start of life kisulína - fyrir besta upphaf lífsins