

Einstaklingsbundin kennsla þar sem hægt er að hjálpa sýnanda að bæta sig, finna leiðir til að bæta hundinn auk þess að bæta samvinnu hunds og sýnanda. Lögð er áhersla á að þjálfa hundinn á jákvæðan og uppbyggilegan hátt.
Þjálfari er Theodóra Róbertsdóttir, sýnandi til fjölda ára með reynslu af tegundum í öllum tegundarhópum.
Hefur þú áhuga á því að fá sýnendaþjálfun fyrir hundinn þinn? Hafðu samband við theodora@dyrheimar.is.
Staðsetning er á útisvæði Dýrheima að Víkurhvarfi 5.