VHN Cat Neutered Weight Balance - blautfóður

Fæst einungis hjá dýralæknum! 

Sjúkrafóður fyrir fullorðna ketti eftir geldingu og til 7 ára aldurs

Melting

Auðmeltanleg prótein með góðgerlafæði sem stuðlar að heilbrigði meltingarvegar.

Kjörþyngd

Lægra magn hitaeininga og fitu, og aukið magn trefja sem hjálpa til við að halda kettinum í ákjósanlegri þyngd.

S/O merking

Hátt vatnshlutfall í blautfóðri hjálpar til við að þynna þvagið út en slíkt dregur úr myndun kristalla. Fóðrið hjálpar til við að draga úr magni jóna í þvaginu sem eiga þátt í myndun kristalla.

Næringargildi

Prótein: 9% - Fita: 2.5% - Trefjar: 1.45%.