VHN Cat Renal Special

Fæst einungis hjá dýralæknum! 

Sjúkrafóður fyrir ketti með skerta nýrnastarfsemi / nýrnabilun

Sama innihald og áferð og Renal línan - en annað bragð og önnur lykt fyrir ketti sem eru lystarlausir.

Stuðningur við nýrun

Sérstaklega gert til þess að styðja við nýrun þegar um nýrnabilun er að ræða. Inniheldur EPA/DHA ásamt andoxunarefnum og lágu hlutfalli fosfór.

Minnkar álag á nýru

Aukið álag á nýru getur ýtt undir aukin vandamál í þvagkerfinu. Aðlagað magn af hágæða próteinum er í vörunni sem minnkar álag á nýrun.

Aðlagað orkumagn

Orkuríkt til þess að uppfylla næringarlegar þarfir katta í minna matarmagni en kettir með skerta nýrnastarfsemi upplifa oft lystarleysi.

Basískara þvag

Stuðlar að því að gera þvagið basískara og vinna þar með gegn sýrandi áhrifum sem krónísk nýrnabilun getur haft.

Notkun:

  • Við azotemískri nýrnabilun (IRIS seinna stig 2-4)

  • Sem meðhöndlun á köttum með skerta nýrnastarfsemi sem gjarnir eru á kalsíum-oxalat þvagsteina

  • Hjálpar til við að fyrirbyggja eftirfarandi þvagsteina (úrat og sistín þvagsteina)

Næringargildi

Prótein: 26% - Fita: 17% - Trefjar: 4.6% - Kalsíum: 0.62% - Fosfór: 0.44% - Kalíum: 0.9% - Natríum: 0.4% - Magnsíum: 0.05% - Klóríð: 0.79% - Súlfur: 0.5% - Vítamín D (samtals): 800 IU - Hýdróxyprólín: 0.88% - Nauðsynlegar fitusýrur: 3.14% - EPA and DHA: 0.41% - Basandi fyrir þvag: Pótassíum (Kalíum) sítrat - Kalsíum karbonat.

Stærð: 4kg