Fæst einungis hjá dýralæknum!
Sjúkrafóður fyrir hunda með ofnæmi eða viðkvæma meltingu sem gjarnir eru á að þyngjast eða eru of þungir.
Smáir ofnæmisvakar
Vatnsrofið prótein sem er auðmeltanlegt og inniheldur mjög smáa ofnæmisvaka sem stuðlar að því að líkaminn þekki ekki ofnæmisvakann og dregur því úr líkum á ofnæmisviðbrögðum.
Melting
Með vatnsrofnum próteinum, FOS (frúktó-ólígó sakkaríð) og langkeðja fjölómettuðum ómega-3 fitusýrum til þess að stuðla að betri og heilbrigðari meltingu.
Húð
Langkeðja fjölómettuðu ómega-3 fitusýrurnar EPA og DHA hjálpa til við að styðja við heilbrigða húð. Hjálpar til við að styðja náttúrulegar varnir húðarinnar.
Minna magn fosfór
Minna magn fosfór til þess að hjálpa til við að styðja heilbrigða nýrnastarfsemi.
Hitaeiningasnauðara
Inniheldur færri hitaeiningar en slíkt stuðlar að heilbrigðari þyngd.
Ráðlögð notkun við:
Fóðurofnæmi, með einkennum í húð og/eða meltingarvandamálum
Krónískum niðurgangi
Þarmabólgu (IBD)
Ófullnægjandi starfsemi briskirtils (EPI)
Bakteríusýkingu í smáþörmum
ATH! Þegar fóðrið er notað til þess að greina fóðuróþol eða sem útilokunarmeðferð þarf, til þess að sjá tilætlaðan árangur, að fóðra eingöngu Hypoallergenic fóðrið og enga aukabita eða annað fóður í amk 8-12 vikur. Eftir það, ef vel gengur, má í samráði við dýralækni fara yfir næstu skref. Ef einkenni lagast eða batna eftir 3 vikur á fóðrinu má halda áfram á því. Ef hundur sýnir enn einkenni um meltingarfæravandamál eða óþol eftir 3 vikur er ráðlagt að hafa samband við dýralækni.
Próteingjafi: vatnsrofið sojaprótein, vatnsrofin kjúklingalifur. Við vatnsrofun próteina er ofnæmsivakinn brotinn smátt niður.
Kolvetnagjafi: hrísgrjón
Næringargildi
Prótein: 23.0% - Fita: 12.0% - Trefjar: 1.1% - Per kg: Nauðsynlegar fitusýrur (línólu-sýrur): 31 g - Fosfór: 6.0 g.
Stærð: 7kg