VHN Small Dog Hypoallergenic

Fæst einungis hjá dýralæknum! 

Sjúkrafóður fyrir smærri hunda með fóðurofnæmi og/eða viðkvæma meltingu

Smáir ofnæmisvakar

Vatnsrofið sojaprótein ásamt vatnsrofinni kjúklinga lifur sem er auðmeltanlegt og inniheldur mjög smáa ofnæmisvaka sem stuðlar að því að líkaminn þekki ekki ofnæmisvakann og dregur því úr líkum á ofnæmisviðbrögðum.

Melting

Með vatnsrofnum próteinum, FOS (frúktó-ólígó sakkaríð) og langkeðja fjölómettuðum ómega-3 fitusýrum til þess að stuðla að betri og heilbrigðari meltingu.

Húð

Langkeðja fjölómettuðu ómega-3 fitusýrurnar EPA og DHA hjálpa til við að styðja við heilbrigða húð og styður við náttúrulegar varnir húðarinnar.

Ráðlögð notkun við:

  • Fóðurofnæmi, með einkennum í húð og/eða meltingarvandamálum

  • Krónískum niðurgangi Þarmabólgu (IBD)

  • Ófullnægjandi starfsemi briskirtils (EPI)

  • Bakteríusýkingu í smáþörmum

ATH! Þegar fóðrið er notað til þess að greina fóðuróþol eða sem útilokunarmeðferð þarf, til þess að sjá tilætlaðan árangur, að fóðra eingöngu Hypoallergenic fóðrið og enga aukabita eða annað fóður í amk 8-12 vikur. Eftir það, ef vel gengur, má í samráði við dýralækni fara yfir næstu skref. Ef einkenni lagast eða batna eftir 3 vikur á fóðrinu má halda áfram á því. Ef hundur sýnir enn einkenni um meltingarfæravandamál eða óþol eftir 3 vikur er ráðlagt að hafa samband við dýralækni.

Próteingjafi: vatnsrofin sojaprótein, vatnsrofin kjúklingalifur. Við vatnsrofun próteina er ofnæmsivakinn brotinn smátt niður.

Kolvetnagjafi: hrísgrjón

Næringargildi

Prótein: 24.0% - Fita: 16.0% - Trefjar: 0.7% - Per kg: Nauðsynlegar fitusýrurs (línólu-sýrur): 37.3 - Kalk: 8.0 g - Magnesíum: 0.7 g - Fosfór: 6.0 g.

Stærð: 3.5kg