Hvolpanámskeið

Á hvolpanámskeiði læra hvolpar augnsamband og samstarfsvilja við stjórnanda.

Notuð er jákvæð styrking, rödd og nammibitar/dót.

Þær æfingar sem farið er yfir á námskeiðinu eru m.a. ganga í taum, sitja, liggja, standa, innkall, slökun, nei skipun og gjörðu svo vel/eða frí.

Farið er í umhverfisþjálfun og hvolpar læra að vinna saman í hóp og við ólíkar aðstæður og eiga að geta gert allar æfingar á ólíkum svæðum. Námskeiðið hentar öllum hvolpum frá 3 mánaða aldri.

Námskeiðið gefur rétt á afslætti á hundaleyfisgjöldum.

Næstu hópar byrja:

  • Þriðjudaginn 10. nóv. kl. 12-13:30
  • Þriðjudaginn 10. nóv. kl. 15-16:30

Fjöldi skipta: 6 skipti í röð alla þriðjudaga - 1 tími er bóklegur án hunds.
Staðsetning: Víkurhvarf 5, 203 Kópavogur

Þjálfari: Albert I. Steingrímsson

Afbókun á námskeið skal berast 5 dögum áður en námskeið hefst.