

Markmið námskeiðs er að undirbúa hunda fyrir áramótin og draga úr streitu vegna flugelda og hávaða.
Albert hundaþjálfari kennir æfingar sem eigendur gera með hundinum fram að áramótum og sem hægt er að nýta sér á áramótunum sjálfum. Hundarnir koma með á námskeiðið og þjálfunin er verkleg.
Þær æfingar sem farið er yfir eru m.a. yfirvegun í áreiti, slökun, virkjun þefskyns og hugmyndir af heilaþrautum.
Mikilvægt er að hafa hundinn í stuttum taum og hafa verðlaun með fyrir hundinn.
Fjöldi skipta: 1
Staðsetning: Dýrheimar, Víkurhvarf 5, 203 Kópavogur
Þjálfari: Albert Steingrímsson
Afbókun skal berast 48 klst. áður en tími hefst.