Golden Retriever Adult

Þurrfóður fyrir Golden Retriever eldri en 12 mánaða

Heilbrigt hjarta

Vandamál með hjarta hefur í gegnum tíðina verið þekktur veikleiki í Golden Retriever. Þetta hafa verið vandamál er snúa að ofstækkun hjartans sem verður þar af leiðandi með veikburða ytri himnu sem getur rofnað (e. Filated Cardiomyopathy; DCM) en sömuleiðis hafa greinst vandamál er snúa að þrengingum í vinstra slegli hjartans (e. Aortic Stenosis). Í fóðrinu eru efni sem stuðla að heilbrigðri hjartastarfssemi. Þessi efni eru fjölómettaðar ómega-3 fitusýrur, amínósýran tárín og L-karnitín en tvö síðasttöldu efnin leika hlutverk í heilbrigðum hjartavöðva á meðan ávinningurinn af ómega-3 fitusýrunum snýr meira að æðakerfinu.

Heilbrigð þyngd

Aðlagað hitaeiningamagn stuðlar að viðhaldi heilbrigðrar þyngdar en Golden Retriever á það til að þurfa að glíma við of mikla þyngd sem setur aukið álag á liði hjá þessari stóru og fallegu tegund.

Heilbrigðir liðir

Mjaðmalos og liðverkir eru þekkt einkenni Golden Retriever, sérstaklega þegar þeir eldast. Fóðrið inniheldur því bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í heilbrigðum liðum. Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem oft myndast í liðum. 

Heilbrigð melting

Fóðrið stuðlar að heilbrigðri meltingu og jafnvægi í þarmaflórunni. Aðlagað magn af auðmeltanlegum próteinum (LIP), trefjum og góðgerlafæðu (FOS) sem stuðla að bættri meltingu.

Viðheldur og styrkir húð og feld

Styrkir náttúrulegar varnir húðarinnar með fjölómettuðum ómega-3 fitusýrum (EPA og DHA) en þær leika lykilhlutverk í öllum frumuhimnum líkamans, og með A-vítamíni og hjólkrónuolíu en öll leika þessi efni lykilhlutverk í heilbrigðri húð og feld.

Fóðurkúlurnar

Kúlurnar eru sérstaklega hannaðar með Golden Retriever tegundina í huga. Sömuleiðis hvetur stærðin og lögunin Goldeninn til að tyggja og hafa þannig eðlilega meltingu þannig að það komi ekki of mikið magn fóðurs í magann of hratt - á þann hátt verður uppþemba í maga ólíklegri.

Tannheilsa

Lögun fóðurkúlnana dregur auk þess úr tannsteinsmyndun því þær hvetja hundinn til að tyggja og því fá tennurnar ákveðna "burstun" frá fóðurkúlunum. Ennfremur er í fóðrinu kalkbindandi efni en kalk í munnvatni er einn stærsti þátturinn í myndun tannsteins.

Næringargildi

Prótein: 25% - Trefjar: 1.4% - Fita: 14%.