Í fóðrinu er að finna álitlegt magn af andoxunarefnum frá fjölfenólum úr grænu tei en fjölfenólar geta leikið lykil hlutverk í því að öldrunareinkenni komi síðar fram.
Í þurrfóðrinu er nákvæm blanda af fjölómettuðum ómega-3 fitusýrum (m.a. EPA og DHA) sem smyrja liði og draga úr liðverkjum enda margir hundar í þessari stærð að glíma við liðvandamál á þessum aldri. Sömuleiðis inniheldur fóðrið ríflega tvöfalt meira af glúkósamíni og kondróítini en í Maxi Adult en niðurstöður rannsókna á báðum þessum efnum gefa til kynna að þau séu liðuppbyggjandi og viðhaldi þar með heilbrigðum liðamótum ég geti skipt miklu máli þegar aldurinn færist yfir.
Inniheldur ómega-3 og ómega-6 fitusýrur sem styrkja ytri vörn húðarinnar og þannig stuðlar fóðrið að glansandi feldi og heilbrigðri húð.
Inniheldur auðmeltanleg prótein (LIP) sem léttir á viðkvæmu meltingarkerfi en veikleikar eiga það til að koma fram í meltingarkerfi eldri hunda. Inniheldur einnig ríkulegt magn af trefjum sem styrkja meltingarveginn og stuðla að jafnvægi í þarmaflórunni.
Prótein: 27% - Trefjar: 2.9% - Fita: 17%.
Stórir fullorðnir hunda sem eru á bilinu 26-44 kg.