Royal Canin Giant Adult fóðrið er sérstaklega gert fyrir hina vinalegu risa. Hundar af slíkri stærð eru sífellt með álag á liði og getur melting þeirra verið viðkvæm.
Stór lögun fóðukúlnanna hvetur hundinn til að tyggja til þess að auðvelda niðurbrot og meltingu. Fóðrið hentar þar af leiðandi einnig miðlungsstórum og stórum hundum sem gjarnir eru á að gleypa fóðrið sitt.
Fóðrið er sérstaklega gert með það í huga að styðja við liðina með glúkósamíni, kondóitríni og EPA/DHA fitusýrum.
Það er ríkt af andoxunarefnum til að stuðla að því að hlutleysa sindurefni og koma í veg fyrir skaða í frumum líkamans.
Til þess að styðja við hjartaheilsu inniheldur fóðrið sérstaklega tárín, en tárín hjálpar til við að stjórna hreyfingu kalks í og úr frumum líkamans og hefur þar með bein áhrif á virkni hjartans.
Til þess að styðja við viðkvæma meltingu er fóðrið ríkt af hágæða auðmeltanlegum próteinum og blöndu af vatnleysanlegum og óvatnsleysanlegum trefjum.