Fæst einungis hjá dýralæknum!
Sjúkrablautfóður fyrir hunda og ketti
Hátt próteinhlutfall
Hátt próteinhlutfall hjálpar til við að viðhalda vöðvamassa í veikindum eða uppbyggingu í bataferli.
Heilstæð næring
Blautfóður sem uppfyllir næringarlega þörf hunda og katta sem þurfa á aðstoð að halda við inntöku hennar. Hentar vel eftir aðgerðir og í vöknun.
Aðlagað orkumagn
Orkumikið sem uppfyllir daglega næringarlega þörf í minna magni sem hentar vel ef um veikindi er að ræða og hlífa þarf meltingarveginum.
EPA/DHA
EPA og DHA langkeðja ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur sem hjálpa m.a. til við að byggja upp slímhimnur meltingarvegarins.
Hægt að nota í sondunæringu
Mjúk áferð sem auðveldar notkunina fyrir sjúklinga með sondu (sondur >10Fr að stærð).
Andoxunarefni
Samverkandi andoxunarefni (þ.m.t. aukið magn E-vítamína, C-vítamína, táríns og lúteins) hjálpa til við að hlutleysa sindurefni.
Ráðlögð í eftirfarandi tilfellum:
Við endurheimt eftir veikindi
Við fóðrun eftir lystarstol
Við vannæringu dýra
Eftir aðgerðir og á gjörgæslu
Ekki er ráðlagt að gefa Recovery í eftirfarandi tilfellum:
Lifrarheilakvilla (notist við Renal Liquid í staðinn)
Næringargildi
Prótein: 14% - Fita: 6.2% - Trefjar: 2% - Vatn: 72.5% - Lífsauðsynlegar fitusýrur: 1.8% - EPA og DHA: 0.45% - Nýtanleg orka: hundar 1160 kcal/kg, kettir 1200 kcal/kg.