apríl 16, 2026 5 mínútur að lesa
Það er engin tilviljun að Maine Coon kettir eru meðal þekktustu kattategunda heims. Tignarleiki og stærð þeirra heillar flesta við fyrstu sýn enda eru þeir stærstir allra kattakynja sem haldin eru á heimilum. Þrátt fyrir virðulegt yfirbragð þá er það blíða og hlýja eðlisfarið þeirra sem vinnur hjörtu fólks til frambúðar. Maine Coon eru sannir "gentle giants" eða blíðir risar.
💡 VISSIR ÞÚ?
Flestir Maine Coon kettir elska að sulla og leika sér í vatni?
Uppruni Maine Coon katta er ekki að fullu þekktur, en talið er að tegundin hafi þróast af villiköttum og skipsköttum í Maine ríki í Norður-Ameríku. Sumar sögusagnir segja að þeir komi frá köttum Frakklands drottningarinnar Marie Antoinette en hún lét senda kettina sína til Ameríku með skipum fyrir aftöku sína. Aðrar frásagnir benda til þess að síðhærðir kettir hafi verið um borð á skipum skipstjórans Charles Coon og að gælunafnið Coon’s cats hafi þannig fest við þá. Fyrstu staðfestu ritheimildir um Maine Coon ketti má rekja til ársins 1861 en á þeim tíma voru þeir þegar orðnir vel þekktir á Maine svæðinu. Tegundin hlaut síðan formlega viðurkenningu frá alþjóðlegu kattasamtökunum FIFé (Fédération Internationale Féline) árið 1982.
Main Coon er stærsta hreinræktaða kattategundin og vega að jafnaði 6-11 kg, þar sem fressar eru yfirleitt þyngri en læður. Þeir eru með síðhærðan, veðurþolinn feld með silkimjúkri áferð og einkennast af stórum eyrum með svokölluðum eyrnatoppum á endunum. Tegundin er mjög loðin á milli táa og er með náttúrulega “snjóskó” sem veita aukna vernd fyrir kulda. Þeir eru með langt og mjög loðið skott sem virkar eins og teppi sem hjálpar til við að halda hita. Líkamsbygging Maine Coon er kröftug, þeir eru með stór möndlulaga augu og sterka höku sem gefur tegundinni áberandi og einstakt yfirbragð. Litaflóran þeirra er mikil þar sem allir litir eru leyfilegir innan tegundarinnar.
Góð feldhirða snýst ekki eingöngu um að halda feldinum fallegum heldur styður hún einnig við heilsu kattarins. Með reglulegri burstun minnka líkur á hárhnútum, húðertingu og óþægindum. Hún gefur einnig eiganda tækifæri til að fylgjast með húð, líkamsástandi og mögulegum breytingum sem geta bent til heilsuvandamála.
Þétti og vatnsfráhrindandi feldur Maine Coon er ótrúlega hagnýtur og hannaður til að þola erfiðar aðstæður en það þýðir líka að regluleg feldhirða skiptir miklu máli til að halda feldinum heilbrigðum og fallegum.
Feldur Maine Coon er tvöfaldur: mjúkur undirfeldur sem virkar sem einangrun fyrir kulda og hita og grófari yfirfeldur sem ver gegn raka og óhreinindum. Þessi samsetning gerir feldinn slitsterkan en getur einnig valdið því að hár flækjast ef þau fá ekki reglulega burstun. Feldurinn er þykkastur á bringu, maga og aftan á lærum. Hárin bakvið eyrun eru einnig mjög fíngerð svo það myndast oftast flækjur á þessum stöðum.
Flestir Maine Coon kettir þurfa að vera burstaðir 2-3 sinnum í viku en sumir þurfa daglega burstun á ákveðnum árstíðum, sérstaklega þegar feldskipti eru á vorin og haustin. Best er að nota bæði pinnabursta og greiðu til að ná bæði yfirfeldi og undirfeldi án þess að toga í húðina. Með reglulegri burstun má koma í veg fyrir að flækjur verði að hnútum sem þarf að klippa burt. Gott er að byrja snemma að venja kettlinga við burstun svo feldhirðan verði auðveldari þegar þeir eldast.
Maine Coon þarf sjaldan bað en það getur verið gagnlegt ef að feldurinn verður fitugur eða ef kötturinn er í miklu feldlosi. Notið alltaf kattasjampó sem er milt og sérstaklega hannað fyrir ketti og skolið það vel úr.
Mikilvægt er að klippa klær reglulega ef kötturinn er einungis inniköttur. Ef mikið eyrnavax myndast í eyrum þarf að hreinsa eyru reglulega. Til að draga úr uppsöfnun bakteríuskánar á tönnum og myndun tannsteins er mælt með reglulegri tannburstum á köttum. Best er að bursta tennur að minnsta kosti þrisvar í viku en dagleg tannburstun veitir mun betri vernd. Með reglulegri tannhirðu má minnka líkur á bólgum í tannholdi, óþægindum og minnka líkurnar á alvarlegum tannsjúkdómum.
Þrátt fyrir stærð sína og kröftugt yfirbragð eru Maine Coon kettir þekktir fyrir blíða, rólega og einstaklega ljúfa skapgerð. Þeir eru yfirleitt félagslyndir, leikglaðir og traustir félagar sem mynda sterk tengsl við fjölskyldur sínar. Tegundin aðlagast flestum heimilum og á oftast auðvelt með að umgangast bæði börn og önnur dýr.
Eitt af sérkennum Maine Coon er hið einastaka hljóð sem þeir gefa frá sér sem minnir frekar á fuglatíst en hefbundið mjálm. Ólíkt flestum öðrum kattategundum hafa Maine Coon kettir sérstakt dálæti á vatni og njóta þess gjarnan að sulla og leika sér í því.
Maine Coon kettir eru stórvaxnir og orkumiklir svo þeir þurfa meira rými og fjölbreyttara umhverfi en margar aðrar kattategundir. Til að mæta náttúrulegum þörfum þeirra er mikilvægt að bjóða upp á klifurtré, örvandi leikföng og tækifæri til að fá útrás fyrir veiðieðli. Þeir eru móttækilegir fyrir þjálfun og margir læra bæði einfaldar skipanir og að ganga í taum. Traust og jákvæð styrking er lykilatriði í allri þjálfun katta en slík nálgun skilar betri og varanlegri árangri. Andleg örvun skiptir einnig máli fyrir þessa gáfuðu tegund og því eru þrautaleikföng og verkefni sem krefjast hugsunar frábær leið til að halda þeim andlega virkum og hamingjusömum.
Maine Coon eru almennt heilbrigðir en það þekkist að þeir séu líklegri til að fá ofvöxt á hjartavöðva (Hypertrophic Cardiomyopathy - HCM) umfram aðrar kattategundir. HCM er oft arfgeng en næring getur einnig haft áhrif á hjartastarfsemina, sérstaklega ef upptaka táríns er dræm, en það getur bæði verið vegna skorts á táríni í fæðu en einnig vegna annarra innihaldsefna sem draga úr upptöku táríns.
Vegna stærðar Maine Coon getur tegundin verið viðkvæm í mjöðmum og mjaðmalos þekkist innan tegundarinnar. Mikil stærð og hraður vöxtur geta aukið álag á liði, sem gerir reglubundið eftirlit hjá dýralækni og rétta næringu í uppvexti sérstaklega mikilvæga. Tegundin er talin fullvaxta um 15 mánaða svo mikilvægt er að halda kettlingum á sérhæfðu kettlingafóðri fram að því.
Heilbrigt holdafar skiptir miklu máli fyrir almenna vellíðan kattarins og hefur áhrif á lífsgæði hans. Rétt líkamsþyngd dregur úr álagi á liði, styður við eðlilega líkamsstarfsemi og minnkar líkur á ýmsum langvinnum heilsufarsvandamálum.
Vegna ofangreindra þátta er sérstaklega mikilvægt að velja næringu sem upfyllir sértækar þarfir Maine Coon katta. Royal Canin Maine Coon fóðrið mætir þessum þörfum bæði fyrir fullorðna ketti og kettlinga. Fóðrið tekur mið af stærð, líkamsbyggingu og heilsufarslegum áhættuþáttum tegundarinnar.
Auðgað af næringarefnum eins og m.a. tárín og EPA/DHA fitusýrum sem styðja við heilbrigða hjartastarfsemi.
Stuðlar að heilbrigðari liðum með blöndu af liðsmyrjandi fitusýrum (EPA/DHA), liðuppbyggjandi efnunum glúkósamíni og kondróítin.
Stuðlar að heilbrigðri meltingu með góðgerlafæðu (MOS og FOS) og auðmeltanlegum próteinum.
Viðheldur heilbrigðum og fallegum feldi með hjálp olía og amínósýra.
Fóðurkúlurnar eru stórar og ætlaðar fyrir stóra kjálka Maine Coon katta. Þessi lögun hvetur þá til að tyggja fóðurkúlurnar og hafa kúlurnar þannig tannburstandi áhrif.
Andrea er dýralæknir að mennt en hún stundaði nám við Háskólann í Kaupmannahöfn (Københavns Universitet) og hefur aukið við sig nám í bráðalækningum hjá ESAVS. Áhugasvið Andreu eru húðsjúkdómar, atferlisfræði og næringarfræði hunda og katta. Andrea starfar hjá Dýrheimum við ráðgjöf tengda næringu í Heilsutékki auk annarrar fræðslu.