Streita í hundum - áhrif á heilsufar

apríl 21, 2026 4 mínútur að lesa

liggjandi hundur

Streita er eitthvað sem flestir hundar upplifa öðru hverju, rétt eins og við mannfólkið. Þó streita sé eðlilegt viðbragð getur hún haft áhrif á hegðun, líðan og heilsu hundsins ef hún verður of mikil eða varir of lengi. Með því að skilja hvað streita er og hvernig hún birtist er auðveldara fyrir eigendur að lesa sinn hund og hjálpa honum þegar þess þarf.  

Hvað er streita

Streita er náttúrulegt viðbragð líkamans við áreiti sem krefst aðlögunar, hvort sem um er að ræða raunverulega eða skynjaða ógn. Við streitu virkjast sympatíska taugakerfið, svokallað árásar- og flóttaviðbragð (e. fight or flight), sem leiðir til losunar streituhormóna á borð við adrenalín og kortisól. Þessi hormón breyta blóðflæði þannig að það færist frá meltingarvegi og út í vöðva, hjarta og heila þar sem þessi kerfi tengjast viðbragði og hreyfigetu og fá forgang yfir þau sem lúta að meltingu og hvíld.  

STREITA HJÁ HUNDUM

Hundar eru oft opnari en til dæmis kettir og sýna hvernig þeim líður með hegðun og líkamstjáningum. Það er einnig mjög einstaklingsbundið hvernig hundar bregðast við streitu, sumir kjósa að draga sig aðeins í hlé á meðan aðrir verða órólegir. Með því að læra inná hvernig ykkar hundur sýnir sín streitumerki verður það auðveldara að styðja hann í erfiðum aðstæðum og hjálpa honum að finna aftur ró og öryggi.  

Hundur í sófa

Algengir streituvaldar

Streituvaldar hjá hundum eru fjölbreyttir og geta bæði verið tengdir ytri áreitum og innri þáttum. Hundar sýna oft sterkari viðbrögð við bráðri streitu en langvinnri og því geta snöggt eða óvænt áreiti haft umtalsverð áhrif á líðan þeirra. 


Algengir streituvaldar eru meðal annars:

  • Hljóðnæmi
  • Dýralæknaheimsóknir
  • Aðskilnaðarkvíði
  • Slæm fyrri reynsla
  • Of mikil eða of lítil örvun
  • Breytingar á umhverfi 

Mikilvægt er þó að hafa í huga að streituvaldar eru einstaklingsbundnir og það sem veldur streitu hjá einum hundi getur haft litlar eða engar afleiðingar hjá öðrum.

EINKENNI STREITU GETA MEÐAL ANNARS VERIÐ:

Hröð kviðöndun

Mæði

Skjálfti

Skott nálægt líkama, jafnvel alveg undir kvið

Mikil slefmyndun

Eyrun dregin aftur

Óhóflegt gelt

Væl

Sleikja útum

Skemmdarhegðun

Ofsnyrting 

Hundur í skoðun

ÁHRIF STREITU Á LÍKAMLEGA HEILSU

Ónæmiskerfi

Það er vel þekkt að langvarandi framleiðsla sykurstera og katekólamína vegna langvarandi streitu getur truflað og bælt niður ónæmiskerfi líkamans.


Hjartaheilsa

Langvarandi streita og hækkað kortisól geta valdið því að blóðþrýstingur hækkar og setur aukið álag á hjarta- og æðakerfi hunds. 


Húð

Streitutengd ofsnyrting getur valdið skallablettum og kláða. Aukið hárlos getur einnig verið streitutengt.

MELTINGARFÆRI

Meltingar- og taugakerfi eru nátengd í gegnum bæði sympatíska og parasympatíska kerfið. Streita getur hægt á magatæmingu, sem getur leitt til uppþembu og minnkaðrar matarlystar. Hún hefur einnig áhrif á þarmahreyfingar og getur dregið úr frásogi vatns í ristli, sem eykur líkur á niðurgangi.


Viðvarandi streita getur haft áhrif á örveruflóru meltingarvegarins og dregið úr fjölbreytileika hennar, sem gerir meltingarkerfið viðkvæmara. Auk þess getur aukin bólgusvörun í kjölfar streitu gert meltinguna næmari fyrir breytingum í fóðri sem hundurinn myndi annars þola vel.


Hvernig hjálpum við meltingarkerfinu?

Það er því mikilvægt að styðja við meltingarheilbrigði hunda, sérstaklega þeirra sem eru viðkvæmir fyrir streitu eða sýna streitueinkenni. Stöðugleiki í fóðrun skiptir þar lykilmáli; með því að forðast skyndilegar breytingar, aukabita og óreglu má hjálpa meltingarkerfinu að takast betur á við streituviðbrögð.


Í ákveðnum tilfellum getur einnig verið rétt að íhuga sérsniðið fóður sem er þróað með þarfir stressaðra hunda í huga. Sem dæmi má nefna Calm frá Royal Canin, sem er sjúkrafóður ætlað hundum með streitutengd einkenni og fæst í samráði við dýralækni. Slíkt fóður er samsett til að veita fullnægjandi næringu og getur stuðlað að tilfinningalegu jafnvægi samhliða stuðningi við eðlilega meltingarstarfsemi, sem hluta af heildrænni nálgun á velferð hundsins.


Ef eigendur eru óvissir um fóðrun eða vilja fá einstaklingsmiðaða ráðgjöf er jafnframt hægt að bóka tíma í næringarráðgjöf í Heilsutékki Dýrheima, þar sem fagleg leiðsögn er veitt út frá þörfum hvers hunds fyrir sig.

ÁHRIF LANGVARANDI STREITU

Langvarandi streita hefur neikvæð áhrif á það hvernig hundinum líður og hvernig hann hegðar sér. Með tímanum geta komið fram hegðunarbreytingar sem erfitt getur verið fyrir eigendur að glíma við, til dæmis óöryggi, aðskilnaðarkvíði eða ófyrirsjáanleg hegðun. Það er mikilvægt að muna að slíkt er ekki merki um óhlýðni eða ,,vondan’’ hund. Slík hegðun er merki um hund sem á erfitt, er óöruggur og þarf stuðning til að komast aftur í jafnvægi. Ef eigendur taka eftir slíkum breytingum getur verið mjög gagnlegt að fá ráðgjöf frá fagaðilum sem geta hjálpað hundinum að líða betur.  

hundur á gólfi

Hvað er til ráða?

Við bráða streitu er oft besta leiðin að fjarlægja hundinn úr þeim aðstæðum sem valda honum óöryggi. Því fyrr sem eigandi sér merkin og hjálpar hundinum að finna ró, því auðveldara er að koma í veg fyrir að streitan byggist upp. 


Fyrirbygging er besta ráðið þegar kemur að því að draga úr streitu hjá hundum. Umhverfisþjálfun getur verið stór hluti af því að kynna hund eða hvolp rólega fyrir mismunandi aðstæðum, hljóðum og umhverfi. Gott er að byrja snemma, til dæmis með því að venja hvolp smám saman við hljóð sem margir óttast, eins og flugelda. Það er þó aldrei of seint að byrja, fullorðnir hundar geta einnig lært að aðlagast nýjum aðstæðum þó ferlið geti tekið aðeins lengri tíma. Að skapa rólegt og fyrirsjáanlegt umhverfi, ásamt reglulegri andlegri og líkamlegri örvun, hjálpar mörgum hundum að halda betra jafnvægi á tilfinningum sínum og vera öruggari í daglegu lífi. 


Streita getur haft áhrif á bæði líðan og heilsu hunda, sérstaklega ef hún verður langvarandi. Með því að þekkja helstu streitumerki og skilja hvernig þau birtast hjá hverjum hundi geta eigendur brugðist fyrr við og skapað umhverfi sem styður við vellíðan hunds. 


Ef streitueinkenni eru viðvarandi er ávallt ráðlagt að leita leiðsagnar hjá fagaðilum.

Kristín sara

Kristín Sara Georgsdóttir

Kristín er dýrahjúkrunarfræðingur að mennt en hún stundaði nám við Hansenberg, Kolding í Danmörku. Áhugasvið Kristínar er að hjálpa eigendum að þekkja dýrin sín betur og fyrirbyggja vandamál og sjúkdóma gegnum ummönnun. Kristín starfar hjá Dýrheimum við ráðgjöf og fræðslu í Heilsutékki Dýrheima auk annarar fræðslu.

TENGDAR GREINAR