Endurnýjaður samstarfssamningur við deild enska setans

janúar 08, 2024 2 mínútur að lesa

Deild enska setans endurnýjaði samning sinn við Royal Canin á Íslandi nú á dögunum. Við þökkum fyrir gott samstarf undanfarin ár og hlökkum til ársins með deildinni sem stendur vörð um ræktun enska setans hér á landi og heldur utan um viðburði og veiðipróf á kyninu auk annarra veiðihundakynja. Á myndinni má sjá Ólaf Örn formann deildarinnar, enska setann Rósu og Gauju sölu- og markaðsstjóra Dýrheima. 

Gauja, Ólafur  og Rósa enskur setter

Royal Canin - Medium Adult


Þurrfóður fyrir meðalstóra hunda eldri en 12 mánaða. 


ÓNÆMISKERFI

Fóðrið inniheldur öflug andoxunarefni og góðgerlafæði (MOS) sem styrkja ónæmiskerfið og efla náttúrulegar varnir líkamanns.


AUÐMELTANLEGT

Auðmeltanleg hágæða prótein (LIP) og trefjar sem stuðla að bættri meltingu. Inniheldur góðgerlafæðuna MOS sem auk þess heldur þarmaflóru í góðu jafnvægi.


HEILBRIGÐ HÚÐ OG FELDUR

Inniheldur ómega-3 og ómega-6 fitusýrur sem styrkja ytri vörn húðarinnar og þannig stuðlar fóðrið að glansandi feldi og heilbrigðri húð.


NÆRINGARGILDI

Prótein: 25% - Trefjar: 1.3% - Fita: 14%.


Royal Canin - 4800 Endurance


Þurrfóður sérhannað fyrir hunda í mikilli þjálfun, hentar sérlega vel yfir veiðitímabil.


AUÐMELTANLEGT

Fóður ríkt af auðmeltanlegum próteinum (LIP) og fitu. Trefjar og góðgerlar (MOS) til þess að styðja við meltingu undir álagi.

Fitusýrusamsetningin í fóðrinu er með þeim hætti að hundurinn þarf ekki að eyða mikilli orku né fyrirhöfn (blóðflæði til meltingarvegar) við að melta kúlurnar þar sem um er að ræða miðlungs stuttar fitusýrur sem krefjast ekki mikillar orku til niðurbrots og flutnings frá meltingarvegi yfir í blóðið (e. passive diffusion).


VÖÐVAR

Stuðlar að auknu súrefnisflæði til vöðva og viðheldur vöðvamassa með háu próteinhlutfalli.


HEILBRIGÐIR LIÐIR

Fóðrið inniheldur bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í heilbrigðum liðum. Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem oft myndast í liðum. Öll þessi efni og hlutverk þeirra verða sérstaklega mikilvæg í hundum sem eru í mikilli þjálfun/vinnu.


ANDOXUNAREFNI

Blanda andoxunarefna sem hlutleysa sindurefni sem verða til undir auknu álagi líkamans og minnka þannig skaðleg áhrif þeirra á líkamann.


NÆRINGARGILDI

Prótein: 32.0% - Fita: 30.0% - Trefjar: 2.0% - Lútein: 15.5 mg/kg fóðurs - Beta-karótín: 2.3 mg/kg fóðurs.