janúar 27, 2026 1 mínútur að lesa
Við bjóðum nú upp á netnámskeiðið: Hvolpanámskeið! Netnámskeiðið er fyrir hvolpaeigendur eða þá sem huga að því að fá sér hvolp.
Markmið námskeiðsins er að undirbúa hvolpaeigendur sem best fyrir komu nýs fjölskyldumeðlims. Á námskeiðinu er farið yfir helstu atriði fyrstu dagana þegar hvolpurinn flytur inn á heimilið, auk þess sem þátttakendur fá fjölbreytt og hagnýt ráð um uppeldi, þjálfun, heilsu og almenna umönnun hvolpa.
Heilsutékk Dýrheima leggur áherslu á að gera hunda- og kattaeigendur sérfræðinga í eigin dýrum. Hér að neðan finnur þú fleiri áhugaverð námskeið.