Um helgina fóru fram Smáhundadagar í Garðheimum! Óli stóð vaktina og tók á móti stórum hópi hundaeigenda og átti mörg skemmtileg samtöl við þau um heilsu og næringu hunda. Hann var einnig til aðstoðar við að velja fóður frá Royal Canin til þess að tryggja að rétt fóður yrði fyrir valinu fyrir hvern hund.
Við hjá Dýrheimum viljum þakka öllum sem mættu á svæðið kærlega fyrir frábæra helgi. Það er alltaf gaman að hitta bæði nýja og gamla viðskiptavini og fallegu hundana ykkar!
Þessir frábæru hundar voru á staðnum og tóku á móti gestum