janúar 07, 2026 1 mínútur að lesa
Markmið Heilsutékks Dýrheima er að gera hunda- og kattaeigendur að sérfræðingum í sínum dýrum. Forvörn er besta lækningin og miðar þjónustan að því að styðja við fyrirbyggjandi umönnun.
Kristín, dýrahjúkrunarfræðingur hefur fjölbreytta reynslu er kemur að umönnun og ráðgjöf við dýraeigendur eftir nám og störf hjá Dýraspítalanum í Garðabæ undanfarin ár, Kristínu hlakkar til að taka á móti ferfættu vinum okkar í Dýrheimum!
Með stækkandi teymi kemur aukin þjónusta sem hægt er að skoða nánar hér að neðan.
Klóaklipping þar sem unnið er að því að styrkja jákvæða hegðun og upplifun dýrsins. Ef dýr er hrætt er klóaklippingin unnin í skrefum á hraða dýrsins.
Ráðgjöf í gegnum síma við dýrahjúkrunarfræðing. Fáðu svör hjá fagaðila við spurningum er varða heilsu dýrsins.
Grunnskoðun og ráðgjöf hjá dýrahjúkrunarfræðingi þar sem kíkt er yfir almennt heilbrigði. Metnir eru þættir eins og líkamsástand, vöðvaástand, eyru, tannheilsa, húð, feldur, klær og loppur.
Með fjölgun í teyminu getum við sinnt enn frekar fræðslu, heilsuráðgjöf og fyrirbyggjandi umönnun! Andrea dýralæknir kemur í teymið okkar af fullum krafti í febrúar næst komandi.