Um helgina opnaði gæludýraverslunin Skott & Loppur! Skott & Loppur er með frábært úrval af hunda- og kattavörum. Vörurnar eru fjölbreyttar og markmið verslunarinnar er að bjóða upp á allt sem þörf er á fyrir hunda- og kattaeigendur. Þið getið fundið vörur frá Royal Canin, Ever Clean, Voskes & Ancol ásamt fjölbreyttu vöruúrvali. Skott & Loppur er staðsett á Bíldshöfða 14 og við hvetjum ykkur innilega til að kíkja í heimsókn!
Klara og Sturla eru eigendur Skott & Loppur en þau hafa verið dýravinir allt sitt líf og átt dýr í meiri en 30 ár. Klara hefur einnig ræktað hunda í um 20 ár. Aðalmarkmið Skott & Loppur er að bjóða upp á sanngjörn verð og framúrskarandi ráðgjöf við verslun þegar kemur að næringu hunda og katta. Við óskum Klöru og Sturlu til hamingju með opnunina á nýju versluninni!