Við hjá Dýrheimum höfum það markmið að gera alla hunda- og kattaeigendur að sérfræðingum í sínum dýrum. Með stækkandi teymi í Heilsutékki Dýrheima höfum við búið til nýtt netnámskeið: Klóaklipping hunda og katta!
Í netnámskeiðinu eykur þú þekkingu þína um klær, klóaklippingu, líðan dýrsins og hvernig þú getur klippt klær dýrsins á öruggan hátt heima fyrir. Uppsetning námskeiðsins fer yfir grunnþekkingu í klóaklippingum, hvernig á að klippa klær, aðferðir við að kenna hundi að vera rólegur í klóaklippi, hvernig á að bregðast við brotnum klóm og hvenær á að leita til dýralæknis.