Dýrfinna eru félagasamtök sem stofnuð voru í kringum leitir að týndum gæludýrum í samvinnu við eigendur þeirra. Dýrfinna hefur einnig verið forsprakki þess að gera velferð dýra í neyð sýnileg, t.d. við áföllin sem dundu í Grindavík. Dýrfinna hóf starf 2022 og alls hafa verið yfir 100 skipulagðar leitir af dýrum. Dýrfinna þróaði einnig smáforrit sem auðveldar fólki að skrá dýrin sín, auglýsa þau týnd og til þess að athuga hvort laus dýr í hverfinu hafa verið auglýst týnd.
Recovery Liquid
Þegar dýr hafa verið týnd í lengri tíma eru miklar líkur á því að þau hafa orðið vannærð. Í þeim tilvikum er mikilvægt að hafa endurfóðrunarheilkenni (e. refeeding syndrome) í huga. Endurfóðrunarheilkenni er lífshættulegt ástand sem getur komið fram þegar vannærð dýr fá of hratt aukna næringu. Mikilvægt er að tryggja það að næring sé kynnt aftur hægt og rólega og fyglst sé vel með hegðun og líðan dýrsins. Royal Canin Recovery Liquid er fljótandi næringardrykkur fyrir hunda og ketti sem eru vannærðir, í bataferli eftir veikindi eða aðgerðir og við miklu lystarleysi. Recovery Liquid getur verið til aðstoðar við endurnæringu vannærðum dýrum þar sem að vökvinn uppfyllir allar næringarþarfir dýrsins í bataferli, Recovery Liquid er próteinríkt, ríkt af andoxunarefnum ásamt því að vera mjög auðmeltanlegt og lystugt.
Styrkur til Dýrfinnu
Dýrfinnuteymið fékk Royal Canin Recovery Liquid að gjöf til þess að hjálpa týndum og vannærðum dýrum að líða betur og batna fljótt þar til dýrið kemst til dýralæknis í frekari skoðun og endurmat. Við vonum að Dýrfinna geta nýtt vöruna í þeirra mikilvæga starfi og þökkum þeim fyrir óeigingjarnt starf í þágu dýra í landinu.