Samstarfssamningur við Shih Tzudeild HRFÍ

mars 15, 2023 1 mínútur að lesa

Shih Tzudeild HRFÍ endurnýjaði samning sinn við Royal Canin á Íslandi í dag. Við þökkum kærlega fyrir gott samstarf undanfarin ár og hlökkum til ársins með deildinni. Deildin hefur verið starfandi í 15 ár og hefur staðið vörð um ræktun Shih Tzu á Íslandi. 

Rannveig Gauja og Súsanna

Royal Canin - Shih Tzu Adult


Þurrfóður fyrir Shih Tzu hunda eldri en 10 mánaða. 


HEILBRIGÐ HÚÐ

Stuðlar að heilbrigðri húð og fallegum feldi með því að styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar með ómega- 3 fitusýrunum EPA & DHA. Fóðrið er jafnframt ríkt af hjólkrónuolíu sem styður einnig við heilsu húðar.


MELTING

Dregur úr magni og lykt hægða með sérstakri blöndu trefja og auðmeltanlegra próteina (LIP). Inniheldur góðgerlafæðu (FOS) til þess að styðja við meltingarveg hundsins.


HEILBRIGÐIR LIÐIR

Fóðrið inniheldur bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í heilbrigðum liðum. Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem geta myndast í liðum.


FÓÐURKÚLURNAR

Lögun fóðurkúlanna auðveldar grip og er sérstaklega gerð fyrir stutta og breiða kjálka tegundarinnar.


TANNHEILSA

Lögun fóðurkúlnana dregur auk þess úr tannsteinsmyndun því þær hvetja hundinn til að tyggja og því fá tennurnar ákveðna "burstun" frá fóðurkúlunum. Ennfremur er í fóðrinu kalkbindandi efni en kalk í munnvatni er einn stærsti þátturinn í myndun tannsteins.


NÆRINGARGILDI

Prótein: 24.0% - Fita: 20.0% - Trefjar: 3.0% - EPA/DHA: 3 g./kg fóðurs.