Dýrheimar er fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var árið 1995 til að sjá um dreifingu á vörumerkinu Royal Canin og er nú orðið að samfélagi Dýrheima. Þar má m.a. finna verslun, hundaskóla, heilsutékk og kaffihús þar sem gæludýraunnendur geta sest niður og slakað á, með dýrin með sér eða innan um þau. Það má vissulega segja að fyrirtækið blómstri með samheldinn hóp sérfræðinga innanhúss.
Langar þig að geta farið niður í bæ í sumar og fengið þér ís og tekið hundinn með án þess að þurfa að að spá "nenni ég að hafa hann með"? Þá er þetta námskeiðið sem þið ættuð að fara á.
Albert er frábær þjálfari, þolinmóður og útskýrir hlutina vel. Það sem við fengum út úr þessu námskeiði var skilningur á því hvað við eigum að hafa í huga þegar við tökum hundana okkar með og hvernig við þjálfum upp góða borgara sem er hægt að hafa með sér á fleiri staði.
Ég á hana Díönu (mini pinser) sem hatar klóaklippingu. Við komum þarna og stúlkan bara klippti og Díana var bara róleg. Ég mæli eindregið með þessu stað .
Made From Lickable Mat
Jawables Dummy
Hef verið alsæl með alla þjónustu sem ég hef fengið hjá Dýrheimum. Hvolpanámskeið, Hlýðninámskeið, regluleg klóaklipping og verslunin fá öll 10 í einkunn frá mér.
Klóaklipping
Gáfum hvolpunum okkar medium puppy fóðrið sem stuðlar að heilbrigði þeirra. Mjōg næringarríkt fóður sem hvolparnir okkar þurfa á að halda á þessum aldri sem þau borða með bestu lyst. Mæli eindregið með þessu fóðri.
Medium Adult fóðrið hefur reynst okkur Kviku mjög vel. Hún borðar alltaf jafn vel af því og hægðirnar alltaf í lagi, auk þess er feldurinn heilbrigður á að líta.
Það hefur einnig reynst okkur vel að skipta yfir á orkumeira Royal Canin fóður (Sporting 4300) ef við erum að hreyfa hana meira t.d. yfir sumartímann - auðvelt að skipta á milli RC fóðra sem er mjög mikill kostur, þ.e.a.s. engar breytingar á hægðum, ekkert feldlos o.s.frv.
mjög auðvelt að skipta á milli, þ.e. engar breytingar á hægðum, feldlos o.s.frv.
Ég er með Vorsteh veiðihunda sem eru í reglulegri vinnu og hentar Maxi Adult þeim fullkomlega. Stærð fóðurbitana hentar stórum hundum vel þar sem þeir eru ekki of litlir. Hundarnir eru í góðum holdum sem þeir halda allt árið sem er ekki sjálfgefið.
Hefði ekki trúað því fyrr en ég prófaði það en medium light weight care gerði kraftaverk á tík hjá okkur sem fitnar við það eitt að horfa á matinn. Eftir eitt ár á fóðrinu voru aukakílóin farin og hreyfigleðin komin aftur hjá henni. Feldur og húð eru heilbrigð og glansandi. Eins og með annað fóður frá RC er það auðmeltanlegt, fá ekki í magann og hægðir eðlilegar. Auðvelt að auka og minnka skammtinn eftir hreyfingu. Mæli svo sannarlega með þessu fyrir hunda sem fitna auðveldlega eða þarf að ná að létta.
Ég var búin að vera að leita af góðu fóðri fyrir mína hunda og fann ekki fóður sem hentaði mínum hundum fyr en ég kynnst Cocker fóðrinu ég sá mun á hægðum og hvað feldurin varð betri Cocker maturinn hentar mjōg vel mínum hundum það er allt í fóðrinu sem þeim vantar til að þroskast rétt
Við erum virkilega ánægð með maxi joint care fóðrið frá RC. Öldungarnir okkar þrífast vel á því og jókst hreyfigeta aftur við að fara yfir á það. Þau fá ekki í magann, eru með eðlilegar hægðir og melta fóðrið mjög vel. Eru með heilbrigða húð og glansandi feld. Auðvelt að auka og minnka skammta eftir hreyfingu.
Við erum virkilega ánægð með medium adult fóðrið frá RC. Hundarnir hjá okkur þrífast mjög vel á því. Feldurinn er heilbrigður og glansandi að sjá. Hundarnir melta fóðrið mjög vel, hægðir eru eðlilegar og fá ekki í magann. Auðvelt að auka og minnka skammta eftir hreyfingu.
Garðsstaða Assa hefur verið á Labrador Adult fóðrinu í 2 ár. Þetta fóður hefur gefið henni orkuþörfini sem hún þarf. Assa er mikið í veiðiþjálfun allt árið og fer í sína veiðitúra gæs og rjúpu þar sem orkuríkt fóður er nauðsinlegt. Feldurinn á Össu er virkilega fallegur og gljáandi. Mælum eindregið með þessu fóðri.
Þjónustan hefur alltaf verið upp á 10
Mjög þægilegt að fá vörurnar sendar heim þegar maður kemst ekki á opnunartíma til að sækja.
Kisurnar mjög sáttar við allt sem við höfum keypt hjá Dýrheimum.