október 01, 2026 9 mínútur að lesa
Lífaldur hunda og katta hefur að jafnaði hækkað á undanförnum áratugum og fleiri dýr halda góðri heilsu langt fram á efri ár. Samhliða þessari þróun hefur áherslan færst í auknum mæli að því hvernig stuðla má að góðum lífsgæðum alla ævina en ekki aðeins lengri lífaldri.
Að eldast er náttúrulegur hluti af lífi allra dýra en það er jafnframt einstaklingsbundið og getur birst með ólíkum hætti. Aldurstengdar breytingar hefjast fyrr en margir gera sér grein fyrir, jafnvel áður en sjáanleg einkenni koma fram.
Heilbrigð öldrun snýst um að styðja við líkamlega og andlega heilsu dýrsins og mæta breyttum þörfum þess eftir því sem árin líða. Með réttri umönnun geta eldri ár orðið dýrmætt lífsskeið ríkt af öryggi, vellíðan og þægindum.

Betri næring, aukin þekking eigenda og framfarir í dýralækningum hafa stuðlað að því að fleiri gæludýr ná háum aldri. Samhliða því hefur áherslan í auknum mæli færst að því að viðhalda vellíðan og virkni eins lengi og mögulegt er. Til að styðja við góða heilsu á efri árum skiptir fyrirbyggjandi umönnun og reglulegt heilsufarseftirlit miklu máli.
Góð lífsgæði felast meðal annars í því að dýrið haldi sem bestri hreyfigetu, viðhaldi vöðvamassa og búi við lágmarks óþægindi eða verki í daglegu lífi. Með auknum aldri verður því sífellt mikilvægara að fylgjast með breytingum á heilsu og líðan svo hægt sé að bregðast við þörfum dýrsins eftir því sem þær þróast.

Mynd sem sýnir hvernig fyrirbyggjandi umönnun getur stuðlað að betri heilsu og vellíðan með hækkandi aldri.
Mikilvægt er að horfa ekki eingöngu á aldurinn á blaði heldur meta heildarmyndina því það er erfitt að skilgreina nákvæmlega hvenær dýr teljast gömul. Öldrun er einstaklingsbundin og ræðst meðal annars af tegund, stærð og erfðum. Stærri hundategundir eldast yfirleitt hraðar en smærri hundar á meðan kettir lifa að jafnaði lengur en hundar. Lífeðlisfræðilegar breytingar tengdar öldrun hefjast þó gjarnan löngu áður en sjáanleg einkenni koma fram, oft þegar dýrið er komið á miðjan aldur. Þótt dýrið virðist hraust og líflegt geta smávægilegar breytingar á hegðun, virkni, svefnmynstri, matarlyst eða hreyfigetu verið fyrstu vísbendingar um að þarfir þess séu að breytast. Því fyrr sem slíkar breytingar eru greindar og metnar þeim mun meiri möguleikar eru á að styðja við lífsgæði og vellíðan dýrsins til lengri tíma.
🐕 Hundar: ~5-7 ára (fyrr hjá stórum hundategundum)
🐈 Kettir: ~7 ára
🐕 Hundar: ~8-12 ára (fyrr hjá stórum hundategundum)
🐈 Kettir: ~10-12 ára
38% gæludýraeigenda telja að það sé ekki hægt að hafa áhrif á öldrun dýra.
46% forðast að hugsa um eða ræða það að dýrið þeirra sé að eldast.
31% bíða með að leita til dýralæknis þar sem dýrinu virðist líða vel.
51% hafa áhyggjur af því að geta ekki veitt dýrinu sínu þá umönnun sem það þarfnast á efri árum.
Þegar hundar og kettir eldast eykst mikilvægi reglulegs heilsufarseftirlits hjá dýralækni. Heilsufarsskoðanir eru mikilvægur þáttur í umönnun gæludýra á öllum aldri en frá miðjum aldri verður þörfin fyrir nánara eftirlit enn meiri. Margar aldurstengdar breytingar og sjúkdómar þróast hægt og geta verið einkennalitlir í upphafi. Á efri árum er oft mælt með því að skoðunum sé fjölgað úr einni á ári í tvær, þar sem tíðara eftirlit eykur líkur á að breytingar á heilsufari greinist snemma.
Reglulegar öldungaskoðanir hjá dýralækni fela oft í sér:
Þótt dýrið virðist við góða heilsu og sýni engin augljós merki um veikindi er gott að fara í reglulegar blóð- og þvagrannsóknir á efri árum. Slíkar rannsóknir geta greint smávægilegar breytingar og þannig aukið líkur á árangursríkri meðferð og bættri líðan. Með blóðrannsóknum er meðal annars hægt að meta starfsemi nýrna, lifrar, skoðað blóðhag og önnur mikilvæg líffræðileg gildi.
Algengir sjúkdómar hjá eldri hundum og köttum:
Slitgigt (e. arthritis).
Nýrnasjúkdómar.
Hjartasjúkdómar.
Innkirtlasjúkdómar (t.d. sykursýki).
Krabbamein.
Tannsjúkdómar.
Skjaldkirtilssjúkdómar og hár blóðþrýstingur (sérstaklega hjá köttum).

Þótt verkir séu algengari með hækkandi aldri eru þeir ekki eðlilegur hluti af öldrun. Margir eigendur túlka breytingar á hegðun eða hreyfigetu sem merki um að dýrið sé einfaldlega að eldast, þegar í raun geta þær verið vísbending um undirliggjandi sársauka eða sjúkdóma sem hægt er að meðhöndla. Liðagigt er gott dæmi um þetta. Hún er algeng hjá eldri hundum og köttum og getur valdið verkjum, stirðleika og skertri hreyfigetu en er ekki óhjákvæmilegur hluti af því að eldast.
Dýr sýna ekki alltaf augljós merki um sársauka og því getur verið erfitt að átta sig á þegar þau finna til. Þetta á sérstaklega við um ketti en þeir geta sýnt lítil sem engin verkjamerki.
Algeng verkjaeinkenni geta verið:
Ef þig grunar að dýrið þitt sé verkjað skaltu hafa samband við dýralækni. Stundum getur verið gott að taka upp myndband heima fyrir áður en lagt er af stað til dýralæknis ef dýrið skildi sýna minni einkenni við skoðun.
Næringarþarfir gæludýra breytast með aldrinum og því er mikilvægt að endurmeta fóður þegar dýrið er komið á miðjan aldur. Með hækkandi aldri eiga bæði hundar og kettir erfiðara með að viðhalda vöðvamassa og því eykst mikilvægi þess að fóður innihaldi nægilegt magn af hágæða auðmeltanlegu próteini ásamt ríku magni andoxunarefna til þess að styðja við frumuheilsu.
Orkuþörf eldri hunda minnkar oft með aldrinum vegna breyttra efnaskipta og minni hreyfigetu og því getur þurft að aðlaga fóðrun til að viðhalda heilbrigðri líkamsþyngd. Eldri kettir geta hins vegar átt erfiðara með að melta og nýta meðal annars prótein og fitu og eru því í aukinni hættu á þyngdartapi og vöðvarýrnun.
Vatnsinntaka skiptir einnig miklu máli, sérstaklega hjá eldri köttum. Sum eldri dýr drekka minna en áður og þá getur blautfóður verið gagnleg viðbót við fóðrunina. Það getur bæði aukið vökvainntöku og auðveldað fóðrun ef til dæmis tannvandamál eða munnóþægindi eru til staðar.
Viðhald heilbrigðrar líkamsþyngdar skiptir miklu máli á öllum æviskeiðum en verður sérstaklega mikilvægt með hækkandi aldri. Bæði ofþyngd og undirþyngd geta haft neikvæð áhrif á heilsu og lífsgæði dýrsins. Rannsóknir hafa jafnframt sýnt að hundar sem viðhalda kjörþyngd geta lifað að meðaltali allt að tveimur árum lengur en sambærilegir hundar sem eru of þungir.
Lyktarskyn hjá hundum og köttum minnkar oft með aldrinum. Hjá köttum hefur það þó oft meiri áhrif á matarlyst þar sem þeir reiða sig meira á lykt þegar þeir velja fóður. Að hita fóðrið lítillega eða bæta smá volgu vatni út á það getur aukið lyktina og gert máltíðir meira aðlaðandi. Mikilvægt er þó að fóðrið sé ekki of heitt þegar það er borið fram.
Hvað er öðruvísi við fóður fyrir eldri dýr?
Fóður fyrir eldri dýr er sérstaklega samsett til að mæta þeim breytingum sem fylgja aldrinum. Ráðlagt er að skipta yfir á öldungafóður á tilsettum tíma, jafnvel þó aldurstengdar breytingar séu ekki enn sjáanlegar.
Öldungafóður Royal Canin inniheldur m.a.:
Mikilvægt er þó að velja fóður út frá þörfum hvers einstaklings. Heilsufar, líkamsástand, hreyfigeta og undirliggjandi sjúkdómar geta haft áhrif á hvaða fóður hentar best.
Breytingar á hreyfigetu gerast oft hægt og því getur verið auðvelt að líta á þær sem eðlilegan hlut af því að eldast. Stirðleiki, helti, tregða við að hoppa upp í sófa, gluggakistu eða bíl, minna úthald og hægari hreyfingar geta þó verið vísbendingar um verki eða óþægindi fremur en öldrun. Slíkar breytingar tengjast gjarnan sjúkdómum í liðum eða stoðkerfi og geta haft áhrif á lífsgæði dýrsins.
Margt er hægt að gera til að bæta líðan og hreyfigetu dýra. Viðeigandi verkjameðferð, þyngdarstjórnun, aðlöguð hreyfing, nudd og sjúkraþjálfun geta dregið úr óþægindum og hjálpað dýrinu að halda virkni sinni lengur.
Viðhald vöðvamassa er einn mikilvægasti þátturinn í heilbrigðri öldrun. Vöðvar gegna lykilhlutverki í hreyfigetu, jafnvægi og getu dýrsins til að sinna daglegum athöfnum. Tap á vöðvamassa getur hafist áður en augljóst þyngdartap verður sýnilegt og því er mikilvægt að meta ekki eingöngu líkamsþyngd heldur einnig líkamsástand og vöðvamassa. Dýr geta haldið svipaðri þyngd þótt þau missi vöðvamassa ef fitumagn eykst á sama tíma.
HVAÐ ER BCS OG MCS?
Við heilsufarsskoðanir meta dýralæknar og dýrahjúkrunarfræðingar ekki eingöngu líkamsþyngd heldur einnig holdafar og vöðvamassa. Til þess er meðal annars notað BCS (e. Body Condition Score) og MCS (e. Muscle Condition Score).
Margir eigendur draga úr hreyfingu þegar gæludýrið eldist í þeirri trú að það þurfi meiri hvíld. Þótt mikilvægt sé að taka mið af getu hvers einstaklings er regluleg hreyfing einn mikilvægasti þátturinn í að viðhalda góðri heilsu og vellíðan á efri árum. Markmiðið er ekki endilega að auka álag heldur að viðhalda hreyfigetu, styrk og liðleika.
Hvernig getur hreyfing hjálpað?
Regluleg og aðlöguð hreyfing getur:
Mikilvægt er að hreyfing sé aðlöguð að aldri, heilsufari og getu hvers dýrs. Styttri og tíðari göngutúrar, rólegar styrktaræfingar eða önnur hreyfing sem dýrið nýtur geta oft verið gagnlegri en langar göngur og krefjandi æfingar. Í sumum tilfellum getur einnig verið gagnlegt að gera einstaklingsmiðað þjálfunarplan í samráði við dýralækni, dýrahjúkrunarfræðing eða sérhæfðan endurhæfingaraðila.
Andleg heilsa er ekki síður mikilvæg en líkamleg heilsa. Með hækkandi aldri er mikilvægt að fylgjast með breytingum á hegðun, venjum og félagslegri virkni dýrsins. Eldri hundar og kettir hafa áfram þörf fyrir örvun, samskipti og verkefni við hæfi en slík virkni getur hjálpað til við að styðja við andlega virkni og vellíðan með hækkandi aldri.
Leikföng sem örva heilann, þefleikir og stuttar þjálfunarstundir geta hjálpað til við að viðhalda andlegri virkni. Það getur einnig verið mikilvægt fyrir ketti að skapa fjölbreytt og örvandi umhverfi, sérstaklega ef þeir verja meiri tíma innandyra með hækkandi aldri. Rútína, öryggi og náin samskipti við eigendur stuðla einnig að aukinni vellíðan og draga úr streitu.
Breyttar þarfir þurfa ekki að þýða skerta vellíðan fyrir dýrið. Litlar breytingar á heimili og umhverfi geta skipt miklu máli fyrir eldri dýr. Markmiðið er að auðvelda dýrinu daglegt líf, auka þægindi og viðhalda sjálfstæði þess eins lengi og mögulegt er.
Dæmi um gagnlegar aðlaganir eru:
Sérstök bæli með stuðningi fyrir liði og bein geta verið góður kostur fyrir eldri dýr sem glíma við stirðleika eða liðverki. Mörg eldri dýr sækjast einnig í hlýja hvíldarstaði, enda getur hlýja aukið þægindi þeirra og hjálpað til við að draga úr stirðleika.
Of langar klær geta haft áhrif á hreyfigetu eldri hunda. Regluleg klóklipping getur bætt grip á gólfum, stuðlað að betri líkamsstöðu og aukið þægindi í daglegri hreyfingu.

Öldrun er eðlilegur hluti af lífi allra hunda og katta. Þótt ekki sé hægt að stöðva tímann er hægt að hafa veruleg áhrif á hvernig þessi ár mótast. Með reglulegu heilsufarseftirliti, viðeigandi næringu, aðlagðri hreyfingu, andlegri örvun og umhverfi sem tekur mið af breyttum þörfum má styðja við heilbrigða öldrun og góð lífsgæði.
Með því að greina breytingar snemma og grípa tímanlega inn í er oft hægt að hafa veruleg áhrif á bæði vellíðan og lífslengd dýrsins. Þótt mörg gæludýr sýni engin augljós öldrunareinkenni þegar þau eru komin á miðjan aldur, oft í kringum 7 ára aldur, er það gjarnan sá tími þegar reglulegt eftirlit og markviss umönnun geta haft mest áhrif á heilsu þeirra síðar á ævinni. Þetta er okkar tækifæri til að styðja við heilsu, virkni og vellíðan dýrsins svo það geti notið efri áranna sem best. Með aukinni þekkingu og réttri umönnun er oft hægt að viðhalda sjálfstæði og lífsgæðum lengur en margir gera sér grein fyrir.
Þannig geta gullnu árin orðið dýrmætt lífsskeið fyllt öryggi, samveru og lífsgæðum, bæði fyrir dýrið sjálft og fólkið sem ann því.

Andrea er dýralæknir að mennt en hún stundaði nám við Háskólann í Kaupmannahöfn (Københavns Universitet) og hefur aukið við sig nám í bráðalækningum hjá ESAVS. Áhugasvið Andreu eru húðsjúkdómar, atferlisfræði og næringarfræði hunda og katta. Andrea starfar hjá Dýrheimum við ráðgjöf tengda næringu í Heilsutékki auk annarrar fræðslu.
Heimildir og nánara lesefni: