Vissir þú þetta um Schnauzer?

mars 17, 2026 4 mínútur að lesa

Schnauzer er hundategund með uppruna, útlit og skapgerð sem hefur heillað marga hundaeigendur í áratugi. Til eru þrjár stærðir af Schnauzer hundum, Miniature Schnauzer (Dverg Schnauzer), Standard Schnauzer og Giant Schnauzer (Risa Schnauzer). Sameiginleg einkenni þeirra eru feldgerð, útlit og að miklu leytir skapgerð. Útlitseinkenni þeirra er yfirfeldurinn sem er strýr, skeggjað trýni, þykkar augabrúnir. Nafnið kemur frá þýska orðinu "schnauze" sem þýðir trýni. Uppruni Schnauzer hunda má rekja til 14.-16. aldar á Þýskalandi þar sem þeir voru notaðir til að smala búfénaði, í rottuveiðar og sem varðhundar. 

💡 VISSIR ÞÚ?

Nafnið Schnauzer kemur frá þýska orðinu schnauze sem þýðir trýni á íslensku?

Black and silver schnauzer
Miniature Schnauzer í litnum svartur og silfur

Útlit og feldhirða schnauzer hunda

Augabrúnir og skegg Schnauzer hunda eru ekki einungis fallegt útlitseinkenni heldur höfðu þau upphaflega skýran tilgang. Þykku augabrúnirnar áttu að vernda andlit hundsins fyrir óhreinindum, veðri og sníkjudýrum á meðan hann sinnti vinnu sinni. Skeggið þjónaði svipuðu hlutverki og verndaði trýnið gegn óhreinindum, kulda og bitum eða klóm frá rottum og öðrum smádýrum sem Schnauzer var ræktaður til að veiða.


Schnauzer hefur tvöfaldan og þéttan feld þar sem undirfeldur er mjúkur en yfirfeldur er grófur og strýr. Þeir fara lítið sem ekkert úr hárum ef þeir eru reyttir. Með því að reyta feldinn er strýja feldinum viðhaldið en sumir kjósa að raka feldinn í stað þess að reyta hann. Þá mýkist feldurinn og missir stríhærða áferð sína og upprunalega virkni með tímanum.

💡 VISSIR ÞÚ?

Schnauzerdeild HRFÍ á 20 ára afmæli í ár og hélt í tilefni þess glæsilega tvöfalda deildarsýningu í sýningarsal HRFÍ helgina 14.-15. mars 2026.

Deildarsýning Schnauzerdeildar
Besti hundur sýningar laugardaginn 14. mars var True-West Dont Stop Believin

Miniature Schnauzer

Er ein vinsælasta hundategund hérlendis enda fjölskylduvæn og kröftug tegund sem hentar fjölbreyttum hópi eigenda, m.a. vegna stærðar sinnar. Þeir eru minnstir af Schnauzer fjölskyldunni en þeir verða ekki mikið meira en 35 cm á herðakamb og um 8 kg. Tegundin kemur í fjórum litaafbrigðum; svartur, hvítur, svartur&silfur og pipar&salt. Lífaldur þeirra er um 12 til 15 ár. 

Dvergschnauzer svartur
Miniature Schnauzer í litnum svartur

Skapgerð

Miniature Schnauzer er kátur, líflegur, barngóður, ákveðinn og kraftmikill hundur sem er þægilegur í þjálfun. Þeir eru stórir hundar í litlum líkama en þeir eru hugrakkir og tilbúnir í hvaða verkefni sem eigandinn leggur fyrir þá.

Standard Schnauzer

Er forfaðir Miniature- og Giant Schnauzer og er millistærð Schnauzer fjölskyldunnar. Þeir eru 45 til 50 cm á herðakamb og 14 til 20 kg á þyngd. Tegundin kemur í tveimur litaafbrigðum; svartur eða pipar&salt. Lífaldur þeirra er um 12 til 14 ár. 

Standard Schnauzer liggjandi
Standard Schnauzer í litnum pipar og salt

Skapgerð

Standard Schnauzer var upphaflega ræktaður sem sveitahundur og sinnti fjölbreyttum verkefnum sem skýrir hvers vegna hann er kröftugur, líflegur og getur nýst sem varðhundur. Hann er tryggur fjölskyldu sinni, greindur og með sterka vilja. Hann getur verið sjálfstæður í eðli sínu en samvinnuþýður þegar traust er til staðar.

Giant schnauzer

Er stærstur af Schnauzer fjölskyldunni en þeir eru um 60 til 70 cm á herðakamb og 35 til 47 kg á þyngd. Tegundin kemur í þremur litaafbrigðum; svartur, svartur&silfur eða pipar&salt. Lífaldur þeirra er um 10 til 12 ár.


Skapgerð

Giant Schnauzer var upphaflega notaður til að reka búfé, gæta bæja og sinna krefjandi verkefnum sem kröfðust styrks, einbeitingar og sjálfstæðrar hugsunar. Þessi bakgrunnur skýrir hvers vegna hann er kröftugur, greindur, ákveðinn og forvitinn hundur sem einnig er tryggur fjölskylduhundur. Hann er orkumikill og vinnusamur svo hann hentar vel sem vinnuhundur ásamt því að vera góður varðhundur.

Giant Schnauzer royal canin
Giant Schnauzer í litnum svartur

💡 VISSIR ÞÚ?

Á heimasíðu Schnauzerdeildar HRFÍ (Schnauzerdeild HRFÍ) er að finna fullt af fróðleik um Schnauzer, ásamt upplýsingum um ræktendur og gotlista.

RC Miniature schnauzer adult
Keya's Star from broddways "Nutella" sem er Miniature Schnauzer

Fóðrun schnauzerhunda

Miniature schnauzer

Eru þekktir fyrir að drekka minna en aðrir hundar og eru líklegri til þess að mynda kristalla í þvagi. Þeir eru viðkvæmir fyrir hárri blóðfitu og þannig mikilvægt að passa fituinnihald í fóðri og aukabitum til þess að vernda brisið þeirra. Tegundafóðrið frá Royal Canin gerir ráð fyrir þeirra þörfum og hjálpar til við að fyrirbyggja þekkta viðkvæma þætti í heilsufari þeirra.


Standard schnauzer

Næringarþarfir þeirra miða við hunda í miðlungsstærð. Þeir hafa tilhneigingu til að mynda brisbólgu eins og Miniature Schnauzer og því er mikilvægt að huga að fitumagni í fóðri og aukabitum. Medium Adult fóðrið frá Royal Canin hentar Standard Schnauzer vel og inniheldur hæfilegt magn af próteini og fitu. 


Giant Schnauzer

Eru stórir hundar og því þarf að næra þá með tilliti til stærðar. Þeir geta verið viðkvæmir fyrir liðavandamálum og því hentar Royal Canin Maxi Adult eða Giant Adult vel þar sem þeir þurfa fóður hannað fyrir stóra hunda til að styðja við heilbrigðan liðþroska.

Andrea, dýralæknir

Andrea Björk Hannesdóttir

Andrea er dýralæknir að mennt en hún stundaði nám við Háskólann í Kaupmannahöfn (Københavns Universitet) og hefur aukið við sig nám í bráðalækningum hjá ESAVS. Áhugasvið Andreu eru húðsjúkdómar, atferlisfræði og næringarfræði hunda og katta. Andrea starfar hjá Dýrheimum við ráðgjöf tengda næringu í Heilsutékki auk annarrar fræðslu.