september 30, 2024 1 mínútur að lesa
Smáhundadagar voru haldnir helgina 21.-22. september í Garðheimum. Jonni okkar stóð vaktina og tók á móti gestum sem gátu komið í spjall til hans og fengið prufur af Start of Life línunni frá Royal Canin. Það var margt um manninn og hundarnir komu að sjálfsögðu með að kíkja á stemminguna.
Stórhundadagar verða svo haldnir helgina 5.-6. október en þar mun Eva okkar standa vaktina og taka á móti bæði tví- og fjórfættum gestum. Ótrúlega skemmtilegir viðburðir þessir dagar sem haldnir eru í Garðheimum og hlökkum við til að sjá sem flesta á næstu viðburðum. Áherslan á básnum okkar báða dagana var Start of Life línan frá Royal Canin en hún tryggir hvolpunum okkar besta mögulega upphaf lífsins og er sérsniðin að þörfum hvolpanna okkar upp allt vaxtaskeið þeirra.