Stórhundadagar voru haldnir helgina 15.-16. febrúar í Garðheimum. Teymið okkar stóð vaktina um helgina og gátu gestir komið og fengið næringarráðgjöf hjá Theodóru dýrahjúkrunarfræðingi. Gestir gátu fengið prufur af Start of Life línunni frá Royal Canin. Mikill fjöldi gesta var á svæðinu að skoða glæsilega hunda, nýta sér tilboð og njóta helgarinnar!
Viðburðir
Ótrúlega skemmtilegir viðburðir þessir dagar sem haldnir eru í Garðheimum og hlökkum við til að sjá sem flesta á næstu viðburðum. Áherslan á básnum okkar var Start of Life línan frá Royal Canin en hún tryggir hvolpunum okkar besta mögulega upphaf lífsins og er sérsniðin að þörfum hvolpanna okkar upp allt vaxtaskeið þeirra.