Ætlar þú að ferðast með dýr í sumar?

maí 20, 2026 4 mínútur að lesa

Sumartíminn er algengur ferðatími þar sem öll fjölskyldan ferðast saman. Í slíkum ferðalögum er mikilvægt að skipuleggja ferðalagið, tryggja öryggi dýranna og einfalda ferlið eins og hægt er svo allir geti notið saman! Við höfum tekið saman nokkra punkta sem gott er að hafa í huga fyrir komandi ferðalög bæði til þess að tryggja ánægjulega ferð en einnig öryggi dýranna.

Hundur m höfuð úr bíl

Undirbúningur ferðalagsins

Undirbúningur er lykillinn að góðu ferðalagi, sérstaklega þegar dýr eru með í för. Með því að huga að öryggi, aðstæðum og þörfum dýrsins áður en lagt er af stað má koma í veg fyrir óþarfa stress og óvænt vandamál.

  • Er dýrið vant ferðalögum eða þarf að venja það smám saman?

  • Eru dýr leyfð á gististaðnum eða áfangastaðnum?
  • Er taumskylda á svæðinu?
  • Eru hættusvæði (sprungusvæði, ár, brattar hlíðar) í nágrenninu?
  • Hversu langt er í næstu dýralæknaþjónustu?
  • Gerum ráð fyrir dýrinu í dagsferðum (t.d. þegar við förum í sund, veitingastaðir).
  • Öryggisbúnaður í bílnum — búr eða belti.
  • Huga að aldri og getu dýrsins.
  • Venja dýrið við ferðabúrið áður en lagt er af stað.
  • Veðurfar: hiti, kuldi, vindur.
  • Athugugið hvort dýrið sé með rétt skráð örmerki og tryggjum að dýrið sé með uppfærðar upplýsingar í örmerkjaskrá (símanúmer og heimilisfang). 

Pökkun fyrir ferðalagið

Þegar pakkað er fyrir dýrin er mikilvægt að hugsa fyrirfram hvað gæti þurft hverju sinni. Með góðum undirbúningi minnka líkur á að þurfa að útvega eitthvað á síðustu stundu eða leita að búnaði sem gleymdist. Vel valinn búnaður tryggir öryggi, þægindi og dregur úr líkum á óvæntum stoppum eða óþægindum á leiðinni.

Pakklisti

  • Fóður.
  • Fóður- og vatnsdallar.
  • Bæli/búr.
  • Löng lína.
  • Krókur í jörð.
  • Hálsól/beisli/taumur.
  • Merkispjald.
  • Staðsetningartæki (GPS).
  • Handklæði til að þurrka blaut dýr.
  • Sólarvörn fyrir dýr með ljósan feld eða viðkvæma húð
  • Sjúkrakassi.
  • Leikföng eða þrautir fyrir hunda.
  • Kattakassa og kattasand fyrir ketti.
  • Skítapoka.
Matthildur í ferðabúri

Ferðast með kött

Margir mikla það fyrir sér að ferðast með köttinn sinn en með góðum undirbúningi er það vel hægt. Algengt er að kettir verða mjög stressaðir í bíl og eigendur hafa áhyggjur af því að kötturinn þeirra týnist á ókunnugum stað. 

Gott er að byrja snemma að venja ketti við bílferðir. Með því verða þeir rólegri og líður betur í ferðalögum. Það er einnig mjög mikilvægt að kettir séu örmerktir og með merkta ól með upplýsingum um eiganda. Þess vegna er mikilvægt að venja köttinn á að vera í beisli og í taum áður en haldið er í ferðalag svo hægt sé að halda honum í bandi á nýjum stöðum og draga þannig úr líkum á að hann týnist. Einnig er sniðugt að nýta tæknina og nota staðsetningartæki (GPS) til að geta fylgst með staðsetningu kattarins skyldi hann villast. 

 

Gott að hafa í huga þegar ferðast er með kött:

  • Köttur þarf öruggt rými og ró.

  • Teppi eða flík með kunnuleg lykt dregur úr stressi.

  • Ferómónsprey getur hjálpað.

  • Aldrei neyða kött út úr búri heldur leyfa honum að koma út sjálfur. 

Bailey í útileigu

Ferðalagið sjálft

Þegar ferðast er með hund er gott að hreyfa hann vel áður en lagt er af stað. Ef um lengri bílferðir er að ræða er mikilvægt að stoppa reglulega svo hundurinn geti teygt úr sér og gert þarfir sínar. Bjóðum ferskt vatn í stoppum vegna þess að mörg dýr vilja ekki drekka í bílnum. Þegar ferðalagið er hafið er mikilvægt að fylgjast vel með dýrinu og tryggja öryggi þess í bílnum. Vegna þess að dýr upplifa ferðalög á mismunandi hátt er gott að lesa í líðan þeirra og bregðast við ef þau sýna merki um stress eða óþægindi. Mörg dýr verða bílveik svo það er ráðlagt að gefa þeim ekki að borða 1-2 klukkustundum fyrir bílferð. Ef dýrið fær mat rétt fyrir ferðalag getur það aukið líkur á ógleði og óþægindum á leiðinni. 

Emma og Ída öruggar á tjaldsvæðinu

Gott að hafa í huga:

  • Dýrið ávallt fest í bíl (ferðabúr eða öryggisbelti).

  • Ekki hafa glugga of opna.

  • Fylgjast með hitastigi í bílnum.

  • Góð umgengni á svæðum og virða nágranna.

  • Forðast aukabita eins og grillmat þar sem slíkt fer alla jafna illa í meltingarveg dýranna. 

  • Fylgjumst með merkjum um hitaslag eða ofkælingu.

  • Aldrei skilja dýr eftir í bíl án góðrar loftræstingar.

  • Tryggjum skugga og skjól.

  • Hafa með svefnpoka eða hlýtt teppi ef gist er í tjaldi. 

Skyndihjálp og öryggi dýra

Vel útbúinn sjúkrakassi og grunnþekking á skyndihjálp er lykilatriði þegar maður ferðast með dýr langt frá næstu dýralæknaþjónustu. Ef þekkingin er til staðar er hægt að bregðast hratt við ef eitthvað kemur upp á. Hægt er að sækja sér netnámskeið í skyndihjálp hunda og katta hjá fræðslusetri Dýrheima Skyndihjálp - Netnámskeið - Dýrheimar

Grein um hvað er gott að hafa í sjúkratösku: Sjúkrakassi dýrsins - Dýrheimar

Upplýsingar um símanúmer vakthafandi dýralækna á öllu landinu má finna á MAST Dýralæknir á vakt | Matvælastofnun 

Ferðalög með dýr geta gert ferðina enn skemmtilegri og gefið okkur tækifæri til að njóta náttúrunnar og sumarblíðunnar með ferfættu fjölskyldumeðlimunum okkar. Með smá fyrirhyggju og góðum undirbúningi verður ferðalagið afslappað og ánægjulegt. Hvort sem ferðinni er heitið í útilegu, sumarbústað eða stutta dagsferð skiptir mestu máli að skapa jákvæða upplifun fyrir alla. Sköpum góðar minningar og njótum ferðalagsins með dýrunum á þeirra hraða.

Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur

THEODÓRA RÓBERTSDÓTTIR

Theodóra er dýrahjúkrunarfræðingur að mennt og er með Award of merit í næringu smádýra frá BSAVA. Ásamt því er áhugasviðið að fyrirbyggja vandamál og sjúkdóma gegnum umönnun. Theodóra starfar hjá Dýrheimum við ráðgjöf tengda heilsu og næringu í Heilsutékki Dýrheima auk þess að halda fyrirlestra, einkatíma fyrir sýningar og sýnendanámskeið. 

Andrea dýralæknir

Andrea Björk Hannesdóttir

Andrea er dýralæknir að mennt en hún stundaði nám við Háskólann í Kaupmannahöfn (Københavns Universitet) og hefur aukið við sig nám í bráðalækningum hjá ESAVS. Áhugasvið Andreu eru húðsjúkdómar, atferlisfræði og næringarfræði hunda og katta. Andrea starfar hjá Dýrheimum við ráðgjöf tengda næringu í Heilsutékki auk annarrar fræðslu.