Hvernig metum við holdafar hundsins?

apríl 30, 2025 3 mínútur að lesa

Gott form

Rétt holdafar er mikilvægt fyrir heilsu og vellíðan hundsins. Óeðlileg líkamsþyngd getur haft áhrif á líkamlega getu, liðheilsu og lífslengd hundsins. Reglulegt mat á holdafari er frábær leið til að styðja við heilsu hundsins og er besta forvörnin gegn lífstílstengdum vandamálum.

💡 Vissir þú að?

Ofþyngd hunda getur stytt líf þeirra um allt að tvö ár. Það er því til mikils að vinna að fyrirbyggja ofþyngd og stuðla að heilbrigðu líferni hundsins fyrir frábær ár framundan!

Er hundurinn minn í ákjósanlegu formi?

Skref 1: Horfðu


Horfðu

Það er einfalt að skoða hundinn heima frá mismunandi sjónarhornum. 


  • Frá hlið: Hundurinn ætti að vera með sýnilegt mitti fyrir aftan rifbeinin. Kviðurinn á að lyftast aðeins upp í átt að afturfótum, ekki síga niður.
  • Ofan frá: Þegar þú horfir ofan frá ætti að sjást mitti. Ef hundurinn er mjög breiður eða jafnvel "ferhyrndur" í laginu gæti hann verið of þungur.
Golden Retriever - Royal Canin

Skref 2: Þreifaðu

Sérlega auðsjáanleg rifbein og mitti ➡ Hundurinn er of grannur

Auðsjáanleg rifbein og mitti ➡ Hundurinn er grannur

Auðfinnanleg rifbein þó ekki sjáanleg og mitti sýnilegt ➡ Hundurinn er í ákjósanlegri kjörþyngd

Rifbein ekki auðveldlega sýnileg né finnanleg og mitti varla sýnilegt ➡ Hundurinn er í ofþyngd

Erfitt að finna rifbein, mitti ekki sýnilegt ➡ Hundurinn er í mikilli ofþyngd


Skref 3: Vigtaðu


Vigtaðu hundinn reglulega

Gott er að vigta á sama tíma dags, t.d. fyrir matartíma.


Notaðu sömu vigt 

Mismunandi vogir geta sýnt frábrugðnar tölur, hafðu einnig í huga að vogin sé örugglega núllstillt.


Fylgstu með þyngdarbreytingum yfir tíma

Skyndilegar sveiflur geta verið merki um heilsufarsvandamál.

Vigt - Royal Canin

Vigtin segir þó ekki allt - ekki gleyma að meta holdarfar einnig sjónrænt og meta almenna líðan hundsins. Ef þig grunar að hundurinn sé ekki í heilbrigðri þyngd eða vantar annað álit er ráðlagt að leita ráðgjafar dýralæknis eða dýrahjúkrunarfræðings.

Af hverju skiptir heilbrigð þyngd máli?

Rétt þyngd er ekki bara útlitsatriði heldur hefur bein áhrif á lífsgæði og heilsu hundsins. 


Lengra líf - Rannsóknir sýna að hundar í kjörþyngd lifa að meðaltali 1,5-2 árum lengur.


Minni líkur á sjúkdómum - Ofþyngd eykur hættuna á sykursýki, hjarta- og öndunarfærasjúkdómum, liðverkjum og fleiri kvillum.


Bætt hreyfigeta - Léttari hundar eiga auðveldara með að hreyfa sig, eru orkumeiri og njóta frekar daglegra göngutúra.


Minna álag á liði og hrygg - Sérstaklega mikilvægt fyrir nú þegar viðkvæma hunda!


Aukin vellíðan - Hundar í góðu formi eru almennt glaðari, með betra þol og þeim líður betur! 

Lykilatriði fyrir heilbrigt líf hundsins!

  • Regluleg hreyfing: Daglegir göngutúrar, leikur og andleg örvun.
  • Rétt fóðrun: Fóðrið þarf að henta aldri, stærð og virkni hundsins - fylgdu ráðlögðum skömmtum og aðlagaðu eftir þörfum.
  • Aukabitar: Takmarkaðu aukabita til þess að stuðla að heilbrigðri þyngd og meltingu.


  • Reglulegar skoðanir: Fyrirbyggjandi heilsufarsskoðanir hjálpa þér að þekkja hundinn betur og fyrirbyggja fyrirsjáanleg vandamál.
  • Tannheilsa: Tennur og tannhold skipta gífurlegu máli fyrir almenna heilsu og matarlyst hundsins.
  • Stöðug rútína: Reglulegir matmálstímar, hreyfing, andleg örvun og hvíld hjálpa hundinum að finna jafnvægi og upplifa vellíðan í daglegu lífi.
Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur

THEODÓRA RÓBERTSDÓTTIR

Theodóra er dýrahjúkrunarfræðingur að mennt og er með Award of merit í næringu smádýra frá BSAVA. Ásamt því er áhugasviðið að fyrirbyggja vandamál og sjúkdóma gegnum umönnun. Theodóra starfar hjá Dýrheimum við ráðgjöf tengda heilsu og næringu í Heilsutékki auk umsjónar fræðsluseturs Dýrheima.

Tengdar greinar

Nánara lesefni og rannsóknir:


https://www.waltham.com/news-events/nutrition/overweight-dogs-may-live-shorter-lives


https://www.cambridge.org/core/journals/proceedings-of-the-nutrition-society/article/outcomes-of-weight-management-in-obese-pet-dogs-what-can-we-do-better/F23CAA360F76A4A2C78979EC2E6C26A4


https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S0022316622083523