Ársfundur, heiðrun og fræðsla Shih Tzudeildar HRFÍ
mars 19, 2025
2 mínútur að lesa
"Ársfundur og heiðrun Shih Tzudeildar HRFÍ var haldin á kaffihúsi Dýrheima þann 18.mars síðastliðinn. Kvöldið hófst á fræðslu frá Theodóru, dýrahjúkrunarfræðingi um heilsu og fyrstu hjálp fyrir shih tzu hunda. Stigahæstu hundar voru heiðraðir fyrir árangur sinn árið 2024 og óskum við eigendum hennar og ræktendum innilega til hamingju með árangurinn"
Heiðrun deildarinnar var haldin á kaffihúsi Dýrheima.
Shih Tzudeild HRFÍ hélt ársfund sinn þann 18. mars á kaffihúsi Dýrheima. Viðburðurinn var vel sóttur af deildarmeðlimum og þökkum við Shih Tzu deild og meðlimum hennar kærlega fyrir komuna.
"Theodóra dýrahjúkrunarfræðingur hélt fyrirlestur um heilsu og fyrstu hjálp aðlagað að Shih Tzu hundum."
Shih Tzudeild HRFÍ
Deildin HRFÍ var stofnuð 2008 og ber ábyrgð á varðveislu og ræktun Shih Tzu hunda í umboði stjórnar Hundaræktarfélags Íslands (HRFÍ). Deildin heldur úti facebook hópi þar sem ýmsum upplýsingum er deilt og viðburðir á vegum deildarinnar eru auglýstir á borð við sýningarþjálfanir o.s.frv.
Stigahæsti hvolpur, hundur og tík ársins 2024. Við óskum eigendum og ræktendum innilega til hamingju með árangurinn! / Mynd: Anja Björg
Sérsniðið fóður að þörfum tegundarinnar
Í yfir 50 ár hefur Royal Canin unnið í samstarfi við ræktendur og dýralækna til að auka skilning fyrirtækisins á sérstökum næringarþörfum katta og hunda, með virðingu fyrir raunverulegu eðli þeirra og eiginleikum. Þannig hafa þeir náð að þróa tegundafóður á borð við Shih Tzu fóðrið sem er sérsniðið að næringarþörfum tegundarinnar þar sem ákveðnir þættir eru sérstaklega hafðir að leiðarljósi. Sjá hér nánari lýsingu á fóðrinu hér fyrir neðan.
ÞURRFÓÐUR FYRIR SHIH TZU HUNDA ELDRI EN 10 MÁNAÐA
HEILBRIGÐ HÚÐ
Stuðlar að heilbrigðri húð og fallegum feldi með því að styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar með ómega- 3 fitusýrunum EPA & DHA. Sömuleiðis er fóðrið ríkt af hjólkrónuolíu sem styður einnig við heilsu húðar.
TANNHEILSA
Dregur úr tannsteinsmyndun með því að draga kalk saman í munnvatninu, en kalk er aðal uppbyggiefni tannsteins.
MELTING
Dregur úr magni og lykt hægða með sérstakri blöndu trefja og auðmeltanlegra próteina (LIP). Inniheldur góðgerlafæðu (FOS) til þess að styðja við meltingarveg hundsins.
HEILBRIGÐIR LIÐIR
Fóðrið inniheldur bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í heilbrigðum liðum. Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem oft myndast í liðum.
FÓÐURKÚLURNAR
Lögun fóðurkúlnanna auðveldar grip og er sérstaklega gerð fyrir stutta og breiða kjálka tegundarinnar.
TANNHEILSA
Lögun fóðurkúlnana dregur auk þess úr tannsteinsmyndun því þær hvetja hundinn til að tyggja og því fá tennurnar ákveðna "burstun" frá fóðurkúlunum. Ennfremur er í fóðrinu kalkbindandi efni en kalk í munnvatni er einn stærsti þátturinn í myndun tannsteins.