Deildarsýning Schnauzerdeildar HRFÍ og Royal Canin
október 21, 2024
1 mínútur að lesa
Um 100 hundar af öllum stærðum og litaafbrigðum Schnauzerhunda mættu til leiks á deildarsýningu Schnauzerdeildar HRFÍ í sýningarsal Dýrheima og Royal Canin.
Besti hundur sýningar, Svartwalds Infinite Dreams
Glæsilegir fulltrúar tegundanna
Mikið fjör var í sýningarsalnum okkar á laugardaginn 19. október - skeggprúðir hundar mættu til leiks að þessu sinni þegar Schnauzerdeildin hélt seinni deildarsýningu ársins.
Um 100 Schnauzer hundar mættu til leiks í öllum stærðum og litaafbrigðum sem til eru hér á landi. Fullur salur af áhorfendum og þátttakendum, auk þess var kaffihúsið þétt setið af áhorfendum þar sem hægt var að horfa á streymi af sýningunni inni í sal og gæða sér á góðum veitingum.
Við óskum eigendum og ræktendum innilega til hamingju með árangurinn á sýningunni! Þökkum Schnauzerdeildinni fyrir skemmtilega samveru en andrúmsloftið á sýningunni var afslappað og gott!
Deildin stendur vörð um framþróun ræktunar Schnauzer á Íslandi, áhersla er lögð á að efla líkamlegt og andlegt heilbrigði tegundanna. Jafnframt er það eitt af markmiðum deildarinnar að vinna að réttri umhirðu hundanna og að ræktunin sé stunduð á metnaðarfullan hátt. Hér fyrir neðan má sjá heimasíðu deildarinnar fyrir frekari upplýsingar um starf hennar og ræktendur tegundarinnar.