september 14, 2024 2 mínútur að lesa
Á dögunum var haldin sýningarþjálfun Spanieldeildar í sýningarsal Dýrheima. Þjálfunin var skipulögð í tengslum við deildarsýningu Spanieldeildarinnar, sem fram fer þann 21. september. Þjálfunin veitti þátttakendum gott tækifæri til að prófa gólfið og slípa sig og hundinn sinn til fyrir stóra daginn. Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir stýrði þjálfuninni en hún hefur áralanga reynslu í sýningarhringnum. Gauja gaf sýnendum hagnýt ráð og vakti tíminn lukku meðal þátttakenda.
Mikið líf var því í hádeginu í sýningarsalnum þegar hundarnir æfðu sig með eigendum sínum. Þjálfun er mikilvægur þáttur í undirbúningi fyrir sýningar og hjálpar sýnendum að draga fram það besta úr sínum hundi. Auk þess geta æfingar skapað afslappað og hvetjandi umhverfi fyrir bæði hunda og eigendur.
Við hlökkum mikið til að taka á móti spanielhundum og eigendum þeirra laugardaginn 21. september á deildarsýningu Spanieldeildar!
HEILBRIGÐ HÚÐ OG FELDUR
Inniheldur ómega-3 og ómega-6 fitusýrur sem styrkja varnir húðar og felds auk hjólkróna olíu sem getur minnkað kláða í húð þar sem hún getur minnkað bólgur líkamans. Inniheldur sink og linóleiksýru (ómega-6 fitusýra) en bæði efnin stuðla að glansandi feldi og geta minnkað flösu sem oft myndast þegar hundurinn er undir álagi, eins og til dæmis á sýningum.
Styður sérstaklega við liðheilsu stærri hunda með glúkósamíni og kondroítíni.
Sérstök samsetning næringarefna sem hjálpar til við að styðja við heilbrigði meltingarvegarins með góðgerlafæðu og auðmeltanlegum próteinum.
Prótein: 30% - Trefjar: 3,1% - Fita: 18% - Línólusýra: 4,7% - Sink: 170mg/kg.